09.05.1927
Neðri deild: 70. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í C-deild Alþingistíðinda. (2782)

64. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á hafnarmannvirkjum

Sveinn Ólafsson:

Mjer kom það sannast að segja á óvart, að þetta frv. skyldi komast til 3. umr., og mjer kom það líka á óvart, að meiri hl. allshn. skyldi á sínum tíma mæla með því. En mest furðar mig þó á því, að slík mál sem þetta skuli hafa gengið hljóðalaust gegnum lávarðadeildina. Mjer virðist þetta mál eiga lítið erindi inn í þingið. Eins og frv. nú er lagað, þá skapar það tvenskonar rjett í landinu, annan fyrir bæi og stærri kauptún, en hinn fyrir sveitir landsins. Það er gert ráð fyrir því, að veita bæjum og stærri kauptúnum rjett gagnvart fasteignaeigendum, sem ekki er til í sveitum, fortakslausan forkaupsrjett, eftir samþykt meiri hluta bæjarstjórnar eða hreppsnefndar. Mjer skilst því, að það eigi að gilda „kommúnistiskur“ rjettur í bæjunum, en almennur, borgaralegur rjettur fyrir sveitirnar. Eins og kunnugt er, þá er forkaupsrjetturinn í sveitum í fyrsta lagi hjá niðjum og nánustu ættingjum seljanda, því næst hjá ábúanda eða leigutaka og svo loks, að þeim frágengnum, hjá sveitarfjelaginu. En bæði rjettur niðja og vandamanna og einnig leigjenda á að hverfa í kaupstöðunum og bæjunum, ef þetta frv. á að verða að lögum.

Jeg kannast við það, að bæjarfjelögin þurfa oft að ná umráðum yfir hafnarmannvirkjum og lóðum þeim, sem liggja að sjó og almenningur þarf að nota. En alt öðru máli er að gegna um lönd og lóðir, sem fjarri sjó liggja. Ef þetta frv. hefði verið þannig samið, að það hefði aðeins tekið til hafnarmannvirkja og lóða þeirra, er að sjó liggja, þá hefði verið vegur að fylgja því. En það er enginn vegur að fylgja því eins og því er nú komið. Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir það, að úr þessu verði misrjetti milli sveita og bæja og stærri kaptúna, er sú, að vísa þessu máli til stjórnarinnar til frekari athugunar. Þá mætti vænta þess, að málið kæmi fyrir næsta þing í breyttum og betri búningi, enda engin nauðsyn að hraða því. Jeg geri það því að tillögu minni að máli þessu verði vísað til stjórnarinnar.