31.03.1927
Neðri deild: 43. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í C-deild Alþingistíðinda. (2795)

103. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaða kjósanda við alþingiskosningar

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Hv. 4. þm. Reykv. endurtók að nokkru leyti, að sjer hefði verið ókunnugt um þetta frv. Að vísu viðurkennir hann nú, að hann hafi vitað um þetta mál. Jeg get lýst yfir því, úr því að hv. þm. knýr mig til þess, að hann vildi alls ekki vinna að þessum breytingum. Úr því að hann neitaði samvinnu, þá sáum við ekki ástæðu til að bera undir hann þær brtt., sem við gerðum við þessi lög.

Þá vjek hann að því, að annar hv. nefndarmaður hefði ekki heldur vitað um þetta mál. Ef hv. þm. V.-Sk. vildi vera svo góður, vildi jeg óska, að hann svari mjer úr sæti sínu, hvort þetta sje rjett. (JK: Mjer var kunnugt um málið, en það var aldrei tekin ályktun um það á nefndarfundi). — Jeg bjóst reyndar við því af hv. þm. V.-Sk., að hann viðurkendi, að hafa vitað um málið, og hefði furðað mjög, ef hann hefði ekki gert það; því að þegar við vorum búnir að vinna að þessu máli, báðum við hann að yfirfara frv. Hv. þm. (JK) afhenti okkur plöggin aftur og kvaðst ekki vera með frv. Nú veit jeg ekki, hvað við hefðum átt að gera, þessir þrír nefndarmenn. Áttum við að kalla saman nefndarfund, sem vorum sammála, og ætluðum að flytja frv.? Okkur var kunnugt um rök þessara tveggja hv. þm., og að þeir urðu ekki með. Getur verið, að hv. 4. þm. Reykv. hefði viljað fylgja frv., ef ekki hefði verið um færslu kjördagsins að ræða. En við tókum fram, að við legðum vinnu í þetta frv. eingöngu með það fyrir augum að flytja kjördaginn. Jeg skil því ekki, hvað það hefði átt að þýða, að kalla saman nefndarfund um mál, þar sem vitanlegt var, að tveir af nefndarmönnum mundu alls ekki fylgja.

Nú hefir hv. 4. þm. Reykv. óskað að vísa málinu til allshn. Málið er komið frá meiri hl. hennar. En til þess að gera hv. þm. til geðs og reyna að fá þá til samvinnu um málið, þá skal jeg fyrir mitt leyti ekki hafa neitt á móti því. Jeg get lofað því fyrir hönd nefndarinnar — og jeg tel það alveg nægja — að kalla nefndina saman til þess að athuga frv. og leita samkomulags um málið. Þetta hygg jeg, að meðnefndarmenn okkar geti látið sjer lynda; með því er það fengið, sem þeir óska eftir, að nefndin eigi tal saman um málið.

Það er rjett hjá hv. 4. þm. Reykv., að við höfum ekki í nefndinni rætt um málið, þegar við vorum búnir að fullundirbúa það. Jeg hefi áður getið um, að það var af því, að allrar samvinnu var synjað um málið áður. Þá gerði hv. þm. þá fyrirspurn, hvort við flm. mundum fylgja þessu frv., ef færsla kjördagsins næði ekki fram að ganga. Jeg get ekki sagt um það fyrir hönd meðnefndarmanna minna; við höfum ekki talað um það. En jeg svara því fyrir mig, að jeg sje minni ástæðu að gera breytingu á þessum lögum, ef færsla kjördagsins gengur ekki fram.

Hv. þm. drap á, að nauðsynlegt væri að búa sem best um þær kosningar, sem fram fara með þessu móti. Alveg rjett. En ef hann hefir lesið þetta frv. þá sjer hann, að langtum tryggilegar er búið um þessar kosningar eftir þessu frv. heldur en núgildandi lögum. Jeg ætla, að við höfum trygt þetta það vel, að þessi kosningaraðferð verði ekki misbrúkuð; miklu síður en samkv. núgildandi kosningalögum um fjarstadda menn. Kjörseðlar eru auðkendir og taldir í hendur kjörstjórna, sem verða að standa skil á öllum greiddum atkv., afgangsseðlum og þeim, er kunna að hafa orðið ónýtir. Jeg hygg, að þetta sje tvímælalaust betra og tryggilegra fyrirkomulag en nú er.