31.03.1927
Neðri deild: 43. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í C-deild Alþingistíðinda. (2797)

103. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaða kjósanda við alþingiskosningar

Hjeðinn Valdimarsson:

Mjer finst, að hv. þm. Str. hefði mátt spara sjer ræður um mig, þangað til jeg hefi tekið afstöðu á móti frv., en þangað til jeg hefi gert það, væri honum best að sitja. Ef hann álítur, að það skifti miklu máli um þetta frv., hvernig skifting er innan Alþýðuflokksins, þá fer hann gönuskeið, í fyrsta lagi af því, að allir Alþýðuflokksmenn eru einhuga í þessu máli, og í öðru lagi vegna þess, að þar sem aðeins er einn Alþýðuflokksmaður í þessari hv. deild, og afstaða mín innan flokksins er kunn, þá getur ekki orðið nema um eina og sömu stefnu mína að ræða í málinu. Annars vil jeg segja það, að framferði meiri hl. í hv. allshn. er svipaðra framkomu Framsóknaríhaldsmanna heldur en Framsóknarsósíalista svokallaðra.

Jeg mótmæli því, að frv. sje nú vísað til nefndarinnar aftur til skyndiyfirlits, enda þótt form hennar lofi því, að málið skuli verða rætt þar. Það verður aldrei annað en kák, þótt ekkert annað sje tekið til greina en það, hvað frv. er langt, 5 síður.