08.04.1927
Neðri deild: 50. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í C-deild Alþingistíðinda. (2826)

8. mál, samskólar Reykjavíkur

Sigurjón Jónsson:

Jeg hefi leyft mjer að bera fram brtt. á þskj. 278 við brtt. hv. þm. V.-Ísf. á þskj. 254, um að síðari hluti þeirrar till. falli niður.

Jeg get fallist á fyrri hl. þeirrar till., þar sem ákveðið er, að samvinnuskólinn geti gengið inn í samskólana, enda þótt hann leggi ekkert af mörkum til stofnkostnaðar, eins og aðrir skólar sambandsins. Jeg hefi fallist á þennan hluta brtt., af því að jeg geri ráð fyrir, að kenslan í verslunarfræðum geti orðið að mestu leyti sameiginleg með þeim, er nema samvinnufræði, og öðrum. — Aftur á móti get jeg alls ekki greitt atkv. með síðara málslið brtt., að samvinnuskólinn skuli njóta þess styrks, er hann nú hefir, þangað til hann gangi í samskólana. Þetta atriði sýnist mjer með öllu óskylt því frv., sem hjer er á ferð. Það snertir ekkert samskóla Reykjavíkur, hvort einhver annar skóli utan við þá nýtur meiri eða minni styrks úr ríkissjóði. Það er algert fjárlagaatriði, nema Alþingi þætti rjett að selja það í lög um samvinnuskólann. Jeg segi þetta ekki af því, að jeg geri ráð fyrir, að styrkurinn til samvinnuskólans verði lækkaður eða feldur niður. Þvert á móti geri jeg ráð fyrir, að hann haldi þeim styrk, er hann nú hefir, uns hann gengur í samskólana. En það veit jeg að hann gerir fyr eða síðar. Jeg fæ ekki betur sjeð en að þessi síðari liður brtt. hv. þm. V.-Ísf. sje einskonar fleygur, sem alls ekki eigi heima í þessu frv. Jeg get því engan veginn trúað því, að þv. þm. V.-Ísf. láti það hafa slík áhrif á sína afstöðu í þessu máli, hvernig fer um síðari lið brtt. hans, að hann samþ. ekki frv. jafnt fyrir því.

Jeg mun ekki fara út í önnur atriði þessa máls, en vil mælast til þess við hv. þd., að hún samþ. brtt. mína, og sniði þannig af brtt. hv. þm. V.-Ísf. það, sem ekki á heima í þessu frv.