17.03.1927
Efri deild: 30. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (285)
5. mál, iðja og iðnaður
Guðmundur Ólafsson:
Hæstv. ráðh. (JÞ) tók dæmi um það, hvað 500 kr. borgun fyrir iðjuleyfi gæti komið hart niður á fátækum saumakonum. Jeg er nú ekki viss um, að hægt sje að heimfæra vinnu saumakonu, er tæki eina stúlku sjer til aðstoðar, undir iðju, heldur iðnað. Auk þess er heimilt að færa gjaldið niður um helming, ef ástæða þykir til.
Mjer þykir undarlegt, að þessi óánægja skuli koma fram út af gjöldunum, þar sem frv. er samið af sjálfu Iðnaðarmannafjelaginu. Hæstv. ráðh. (JÞ) vitnaði til varaformanns fjelagsins. Jeg get vitnað til aðalformannsins. Nefndin átti tal við hann, og honum þótti frv. ágætt áður en þessar brtt. komu fram. Um síðari brtt., sem jeg hafði heldur á móti, býst jeg ekki við, að miklu máli skifti, hvort hún er samþykt eða ekki. En jeg sje ekki, að hún gefi verið til neinn bóta.