10.03.1927
Neðri deild: 26. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í C-deild Alþingistíðinda. (2860)
53. mál, strandferðaskip
Jón Kjartansson:
Þegar þetta mál var hjer til umr. í fyrradag, benti jeg á, að athuga þyrfti, hvort eigi væri hægt að reka strandferðirnar með hagkvæmara skipulagi en nú er, fyrir það fje, sem til þeirra er veitt. Jeg benti jafnframt á það, hve þarfir landsmanna í þessum efnum hafa breyst, einkum við það, að millilandaferðirnar hafa breyst mikið frá því sem áður var. Einnig benti jeg á, að í framtíðinni mundi það sýna sig, að strandflutningarnir yrðu aðallega á flóabátum, en ekki á stórum strandferðaskipum; þau yrðu mest fyrir flutninga á pósti og farþegum, en flóabátarnir tækju að sjer vöruflutninga til og frá aðalútflutningshöfnunum.
Jeg benti á það, að ekki virtist alstaðar farið hagkvæmlega með það fje, sem veitt væri til strandferða, og nefndi Hornafjarðarbátinn í því sambandi. Jeg tók það fram þá, og get undirstrikað það nú, að á liðnum árum hafa fáar hafnir verið eins útundan um samgöngur og Hornafjörður. Þess vegna er það fyllilega eðlilegt, að hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) beri fram kröfur um bættar strandferðir. En jeg held, að úr þörfum Hornafjarðar megi bæta án nýs strandferðaskips á miklu ódýrara hátt. Og jeg þykist vita, að nýtt strandferðaskip gæti enganveginn fullnægt kröfum Hornfirðinga eða Austur-Skaftfellinga yfir höfuð. Jeg er þess fullviss, að þó svo færi, að samþ. yrði nú að láta byggja nýtt strandferðaskip, þá yrði enginn þm. fyrri til að biðja um flóabát en hv. þm. A.-Sk. í hans kjördæmi hagar nokkuð líkt til og í mínu, að þar verður að hafa flóabáta.
Jeg nefndi það um daginn, að Alþingi hafi sýnt vilja sinn til endurbóta í þessu máli með því að hækka styrkinn til Hornafjarðarbáts upp í 8 þús. kr. En er jeg var á ferð um Austur-Skaftafellssýslu í sumar, varð jeg þess var, að almenningur er ekki eins ánægður með þessar ferðir og hv. þm. A.-Sk. vill vera láta. Styrknum er nú þannig úthlutað, að sýslunefnd er falið að verja honum á þann hátt, er henni þykir hentast, og skiftir hún honum milli tveggja atvinnurekenda í Hornafirði. Það er mikill misskilningur hjá hv. þm. (ÞorlJ), ef hann hyggur, að jeg hafi viljað drótta nokkru óheiðarlegu að sýslunefnd eða oddvita hennar í þessu sambandi. Slík orð geta ekki stafað af öðru en rökþrotum hjá honum, því að mjer hefir aldrei komið til hugar neitt í þá átt. Jeg tók það einmitt fram um daginn, að jeg byggist við, að sýslunefnd væri ómögulegt að ráðstafa styrknum öðruvísi. Þar með er ekki sagt, að styrknum yrði ekki á annan hátt betur varið, svo sem með því, að fjelagsskapur yrði myndaður til að halda uppi ferðunum með sjerstökum báti, eða með því að veita styrkinn einhverjum einstökum manni, sem tæki að sjer reglubundnar ferðir alt árið.
Hv. þm. A.-Sk. leiðrjetti það, sem jeg hafði sagt um skiftingu styrksins, og upplýsti, að þessir tveir atvinnurekendur hefðu fengið jafna upphæð, 4 þús. kr. hvor. Það var ekkert aðalatriði hjá mjer, en þó kann jeg honum þakkir fyrir leiðrjettinguna. Það, sem aðallega vakti fyrir mjer, þegar jeg gerði þennan flóabát, Hornafjarðarbátinn, að umtalsefni, var, að benda á, að með þessu fyrirkomulagi, sem þarna er haft, miðast ferðirnar eingöngu við þarfir þessara tveggja atvinnurekenda. Vetrarferðirnar miðast eingöngu við fiskflutning frá Hornafirði, og haustferðirnar við kjötflutning. En menn geta sagt sjer það sjálfir, hvort ekki þarf samgöngur þarna á öðrum tíma. Háttv. þm. A.-Sk. sagði, að sýslunefnd hefði þótt hentast að verja styrknum á þennan hátt, og að svona yrðu hans best not. Það má vel vera, að ekki hafi verið um annað að ræða, eins og á stóð, en þar með er ekki sagt, að sýslunefnd gæti ekki fallist á annað skipulag, t. d. að styrkurinn yrði veittur einhverjum sjerstökum bát, með því skilyrði að halda uppi reglubundnum ferðum alt árið eða mestan hluta þess.
Jeg vildi alls ekki ásaka kaupfjelagið fyrir misnotkun á sínum hluta af styrknum, enda þótt það hafi sýnt sig, að sá tími, sem það heldur uppi ferðum til annara hjeraða, er afarstuttur, aðeins 1 mánuður. Almenningur hlyti að hafa betri not af ferðunum, ef styrkurinn væri bundinn við það, að áætlanir væru gerðar fyrirfram, og ferðunum væri dreift á lengri tíma, t. d. alla sumarmánuðina og framundir áramót. Mjer skildist hv. þm. (ÞorlJ) staðfesta þau orð mín, að Þórhallur Daníelsson hefði haldið uppi sínum ferðum frá febrúar og fram í júní, en kaupfjelagið aðeins í einn mánuð, október. (ÞorlJ: Og nóvember.) — Það er þá aðeins mjög stutt fram í nóvember. Ennfremur skildist mjer, að það væri rjett, að ferðir kaupfjelagsins væru eingöngu eða nær eingöngu til Fáskrúðsfjarðar. Hv. þm. sagði að vísu, að báturinn hefði komið á allar þær hafnir á Austfjörðum, sem þörf hafi verið á — en hann gaf jafnframt í skyn, að ekki hafi verið þörf að koma nema á þennan eina stað. En þegar engar ferðaáætlanir liggja fyrir, er ekki fyrirfram hægt að segja um þörfina.
Það er ekki ætlun mín að átelja það neitt, þótt nokkuð af styrknum, sem kaupfjelagið fjekk, hafi verið veitt til innansveitarflutninga. Það er afarþægilegt, að geta fengið vörurnar þannig sendar heim, og jeg veit, að þess er full þörf í Austur-Skaftafellssýslu. En jeg fæ ekki sjeð, að þetta verði neitt síður hægt, þó að sjerstakur bátur annist flutningana fyrir Austur-Skaftafellssýslu og Austurlandi.
Hv. þm. A.-Sk. skoraði á mig að nafngreina þær heimildir, er jeg hefði fyrir orðum mínum. Jeg tel enga þörf að verða við þeirri ósk, þegar hv. þm. hefir sjálfur staðfest svo að segja hvert orð, sem jeg sagði. Það er aukaatriði, sem jeg er fús á að leiðrjetta, að báðir aðilar hafi fengið jafnan styrk til að halda uppi ferðunum. Hitt er höfuðatriðið, að ferðirnar miðast aðeins við eigin þarfir þeirra atvinnurekenda, sem styrksins njóta, í stað þess, að hjeraðsins vegna þyrfti að dreifa þeim sem mest yfir alt árið. — Jeg skil ekki, hvernig hv. þm. getur komið til hugar, að jeg vilji skaða Austur-Skaftfellinga með því að benda á þetta. Hann er þeirrar skoðunar, að gott gagn sje að þessum ferðum, sem nú eru, þó að strandferðaskip sje takmarkið. En jeg held því fram, að aldrei komist lag á samgöngur á þessum slóðum, fyr en fenginn hefir verið sjerstakur, góður bátur til að annast flutninga þar. Austur-Skaftfellingar verða áreiðanlega aldrei ánægðir með strandferðaskip, sem þarf að fara umhverfis alt landið. Besta lausnin er áreiðanlega að fá góðan flóabát, sem getur annast ferðir fyrir Austur-Skaftafellssýslu og fyrir Austfjörðum, alla leið norður að Skálum á Langanesi.
Áður en jeg lýk máli mínu, vil jeg minnast á það, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði um vjelbátana, að ekki væri unt að fá ljelegri farkost. En það verða menn að athuga, að þeir bátar, sem til flutninga hafa verið notaðir, eru aðeins fiskibátar, sem bygðir eru með það eitt fyrir augum. Verði bygðir sjerstakir bátar til þessara ferða, sje jeg ekki annað en að hæglega megi gera þá vistlegri. Meira að segja er alls ekki nauðsynlegt að hafa flóabátana vjelbáta; væri e. t. v. alt eins hentugt að hafa litla gufubáta til ferðanna, og jeg er þess fullviss, að flóabátar eiga fyrir sjer að batna stórum.
Hv. 1. þm. S.-M. vildi reyna að sanna hv. deild, að jeg hefði skift skoðun í þessu máli frá því í fyrra, ásamt hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), með því að þá hefðum við skrifað undir nál., þar sem það er talið æskilegt, að Íslendingar eignist tvö strandferðaskip. Jeg er engan veginn horfinn frá þessari skoðun minni; það væri ákaflega æskilegt að eiga 2 strandferðaskip, já, jafnvel eiga 4. — En við getum bara ekki fengið alt, sem við teljum æskilegt, nema við látum eitthvað í staðinn. Það kostar mikið fje að láta smíða og reka strandferðaskip, og það er af fjárhagsástæðum, sem jeg sje ekki fært að ráðast í það nú.