23.04.1927
Neðri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í C-deild Alþingistíðinda. (2877)

53. mál, strandferðaskip

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Hv. frsm. meiri hl. (SvÓ) fór svo lítið út í mína ræðu, að jeg þarf ekki að svara nema örfáum atriðum. — Hann kvað mig hafa sagt, að ríkið væri ekki fært um að leggja út í þessi kaup. Það er ekki rjett, en jeg benti á hitt, að rekstrarhallann af þessu skipi — 150 —200 þús. kr. á ári — verður að taka frá öðrum nauðsynlegum framkvæmdum. Það vita allir, sem hafa komið nærri því að útbúa fjárlög, að slík ný, föst útgjöld hljóta að ganga út yfir 13. gr. fjárlaganna. Hjer er alt öðru máli að gegna en um ábyrgðina til Landsbankans, sem samþ. var á þessu þingi. Hjer er um bein útgjöld að ræða, en hitt er aðeins ábyrgð, sem allar líkur, eða jafnvel full vissa er fyrir að aldrei þurfi að greiða. Um endurkaupaskyldu Landsbankans á víxlum Íslandsbanka er ekki þörf að ræða að þessu sinni. Eflaust verða nógu mörg tækifæri til þess síðar á þinginu. — Um kaup á skipi hefi jeg fengið alveg þveröfugar upplýsingar við hv. frsm. meiri hl. (SvÓ). í þskj. 60 í fyrra — grg. samgmn. fyrir till. til þál. um leigu á skipi til strandferða — er sagt, að það sje mjög hæpið, að annað geti borgað sig en að kaupa nýtt skip. Þessu get jeg verið alveg sammála. — Fleiri atriði en þessi í ræðu minni held jeg að hv. frsm. (SvÓ) hafi ekki minst á, svo að jeg hefi ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð.