23.04.1927
Neðri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í C-deild Alþingistíðinda. (2882)

53. mál, strandferðaskip

Jakob Möller:

Hæstv. atvrh. taldi það mjög mikilsvert fyrir smáhafnirnar, að fá vörur sínar „beint“ frá útlöndum. Jeg fæ ekki sjeð, hvað unnið er við það út af fyrir sig, að vörurnar komi beint, ef það kostar ekki meira og tekur ekki verulega lengri tíma að flytja þær öðruvísi. Ef Eimskipafjelagið hefir strandferðirnar á hendi, mundi það að sjálfsögðu hafa svonefnd „gegnumgangandi“ farmgjöld á vörum til smáhafnanna frá útlöndum. Þótt þannig fengist mjög lítið í bein farmgjöld á strandferðaskipunum, gæti rekstur þeirra borgað sig, með því að hann sparaði stærri skipunum að sleikja upp allar smáhafnir. — Jeg er sammála hv. frsm. minni hl. (JÓl) um það, að nú er fyrirkomulag á strandferðum hjer við land mjög óhentugt að ýmsu leyti. Það þyrfti að verða bæði hentugra fyrir landsmenn og ódýrara. En til þess að svo geti orðið, þarf að stefna að því, að millilandaskipin komi aðeins á hinar stærri hafnir, en smáskipin sjeu notuð til að dreifa þaðan varningnum á smærri hafnir. Eigi þetta hinsvegar að geta komið til framkvæmda, þurfa bæði strandferðir og millilandaferðir að vera í höndum sama aðila — Eimskipafjelagsins. En hverjar eru líkurnar fyrir því, að fjelagið taki þetta að sjer? Jeg skal játa, að þær eru ekki miklar, meðan ekki er gengið eftir því með alvöru, af hálfu Alþingis. En ef það er ráðlegt, undir þeim kringumstæðum, sem nú eru, að ríkissjóður annist strandferðirnar og geri það á þann hátt, sem landsmönnum er nauðsynlegt, þ. e. a. s. að minsta kosti með tveimur skipum, og þá er um leið álitið sennilegt eða ráðgert, að hann taki styrkinn af Eimskipafjelagi Íslands, þá kemur það til athugunar, hvort heppilegra er fyrir okkur, því jeg verð að halda því fram, að þegar strandferðirnar eru komnar í það horf, sem óskað er eftir, t. d. reknar með tveimur góðum skipum, að þá sje meiningarlaust að halda áfram að styrkja Eimskipafjelagið. En það er nauðsynlegt að láta það velja um, hvort það vill hafa styrkinn og strandferðirnar, eða missa hann og ríkissjóður taki að sjer strandferðirnar. Og þess vegna held jeg, að það sje rjett að sýna það, að við teljum fulla ástæðu til, að strandferðunum sje komið í þetta horf, og sem mönnum kemur saman um að fyr eða síðar muni reka að.

Mjer þykir það dálítið furðulegt, þegar einmitt þeir sömu hv. þm., sem mæla mest með járnbrautinni til Suðurlandsundirlendisins, með þeim rökum, að járnbrautin sjálf muni skapa flutningsþörfina, að þeir ekki geta litið á þetta mál á sama hátt, að auknar samgöngur muni skapa meiri flutningsþörf, þ. e. a. s. verði lyftistöng undir alla framleiðslu í landinu.

Jeg sje við nánari athugun, að jeg hefi litið skakt á, að þetta frv. sje aðeins heimildarlög. Það er að vísu svo fyrir mælt í frv., að það skuli byggja þetta skip fyrir tiltekinn tíma, og breytir það að vísu málinu nokkuð, eins og nú stendur á, en þar sem hæstv. stjórn hefir lagst allfast á móti þessu máli, þá geri jeg ráð fyrir, að hún geti fengið sínum vilja framfylgt í hv. Ed., þar sem hún er í meiri hluta. En jeg álít, að það eigi, til þess að fá góða lausn á málinu, að sýna fullkomlega, hvað þingið vill, að gert sje í þessu efni, og ef hv. þdm. eru þeirrar skoðunar, að það eigi að stefna að því, að hafa tvö strandferðaskip, eins og áður var, þá held jeg, að þeir geti illa sett sig á móti þessu frv.