23.04.1927
Neðri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í C-deild Alþingistíðinda. (2891)
53. mál, strandferðaskip
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg verð að segja það, og þá líklega fyrir munn margra háttv. þdm., að jeg er hissa á þeim umræðum og þeim rökum, sem færð hafa verið fyrir þessu máli. Það er vitanlegt, að rökin og ástæðurnar fyrir þessu máli eru svo litlar, að þótt þær sjeu skoðaðar í smásjá, þá sjást þar ekki. Menn hrópa hátt um meiri strandferðir. Og auðvitað væri það þægilegra og hentugra, ef hægt væri að koma því við með litlum tilkostnaði. En það er stórkostlegur fjárhagslegur baggi, sem bundinn er þjóðinni í heild sinni, ef ráðist verður í kaup á nýju skipi. Þó eru útgjöldin til skipakaupanna smáræði í samanburði við hinn árlega rekstrarkostnað. En hvaða hjeruð eru það nú, sem þurfa nauðsynlega auknar strandferðir? Við skulum fara kringum landið og athuga það. Ekki er það Gullbringu- og Kjósarsýsla, ekki Árnessýsla, ekki Rangárvallasýsla, ekki Vestmannaeyjar, ekki Vestur-Skaftafellssýsla, ekki Suður-Múlasýsla, eftir því sem hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) hefir nú loks viðurkent, er hann sá alvöruna í málinu, aðeins sáralítill hluti Suður-Þingeyjarsýslu, ekki Eyjafjarðarsýsla, ekki Skagafjarðarsýsla, nokkur hluti Húnavatnssýslu, ekki Norður- og Vestur-Ísafjarðarsýsla, sáralítill hluti Barðastrandarsýslu, og þó ef til vill ekki, Dalasýsla og Snæfellsnessýsla að litlu leyti, ekki Borgarfjarðarsýsla og ekki Mýrasýsla.
Reynslan sýnir, að skip, sem annast flutninga á mesta annatímanum, haustmánuðunum, fær í flutningsgjöld aðeins 20 þús. kr. um þriggja mánaða tíma. Gerum nú ráð fyrir, að skipið gangi í 10 mánuði, og þá er jeg sannfærður um, að flutningsgjöldin verða ekki mun meiri en tvöföld við það, sem var á þessum 3 mánuðum. Það fer því ekki fram úr 50–60 þús. kr., sem skipið fær í tekjur. Jeg hygg, að jeg hafi eins mikla þekkingu á þessu eins og aðrir háttv. þdm., enda hefi jeg kynt mjer málið mjög ítarlega.
Menn tala um, að þetta verði atvinnuvegunum til mikillar farsældar. En það, sem mestu varðar fyrir atvinnuvegina, er að hafa greiðar samgöngur til útflutningshafnanna og sæmilegar samgöngur um hjeruðin, til þess að komið verði við vöruskiftum og hægt sje að nota sem mest innlendar vörur í þjóðarbúinu. Í þessu tilliti koma flóabátarnir atvinnuvegunum að margföldu gagni á við stóru skipin. Eyfirðingar segjast t. d. ekkert kæra sig um viðkomur Esju, en vilja fá flóabát. Enda er það svo, að það er um að gera fyrir bændur og sjómenn, að hafa greiðar samgöngur í hjeraði. Það lyftir atvinnuvegunum mest, bæði til lands og sjávar. Við, sem lifum í kaupstöðum og sjávarþorpum, þurfum að fá landvörur með sem skemstu millibili, og bændurnir aftur að fá sjávarvörur sem tíðast. En það verður ekki gert með nýju skipi, sem fer kanske á þriggja vikna til mánaðarfresti í kringum land. En skemri tíma tekur það ekki, ef það á að koma á hverja smáhöfn, þar sem einhver þörf er viðkomu.
Jeg er hissa á því, að háttv. aðalflm. (SvÓ), sem hefir þó kynt sjer þetta mál eitthvað, skuli leyfa sjer að halda því fram, þvert ofan í það, sem reynslan segir, að aukinn strandferðakostnaður við þetta nýja skip mundi ekki fara fram úr 50–60 þús. kr. árl. (SvÓ: Það hefi jeg ekki sagt.) Háttv. þm. neitar því, og er það gott. Hann skal fá að renna frá fleiri staðleysum í málsvörn sinni. Hvað segir hann um þá röksemdafærslu, að útgerð þessara tveggja skipa kæmi ekki til að kosta ríkissjóð nema 200–250 þús. kr. árlega, vitandi það, að útgerð Esju einnar kostar nú yfir 200 þús. kr.? Jeg kann þá ekki algengan reikning, ef ekki koma samkvæmt þessu um 50 þús. kr. á nýja skipið. Þar við bætist, að rekstrarhalli Esju er nú mun meiri en tilfært er á reikningnum. Þá er að athuga, hvort Esja fær á annan hátt auknar tekjur, í stað þess sem hún tapar í farmgjöldum. Flm. fullyrða, að Esja fái þær tekjur, sem hún þannig missir, í auknum fargjöldum. Það er þó vitanlegt, að slíkt strandferðaskip sem Esja, þó að hún færi hraðferðir á einar 16 hafnir, þá fær hún ekki nema örlítið brot af aðalfólksflutningnum, en hann er einmitt frá Reykjavík til Ísafjarðar og Akureyrar og frá Reykjavík til Austfjarða. Þau skip, sem fara beint, fá því nær alla fólksflutninga. Hafa menn athugað hjá Eimskipafjelaginu, hve mikil flutningsgjöld það fær af skipum sínum, er þau fara á þetta 5–6 hafnir frá Reykjavík til Akureyrar, á móts við útlendu skipin, sem fara beint: Rvík, Ísafj., Akureyri. Útlendu skipin fá einmitt aðalfólksflutninginn, og honum verður aldrei beint yfir á strandferðaskipin.
Hv. 1. þm. S.-M. hefir haldið því hjer fram í 2 ár, að ef Esja færi hraðferðir með fáum viðkomum, þá mundi útgerðin borga sig. Og hann heldur þessu enn fram, eftir að reynslan hefir sýnt það gagnstæða. Því að reynslan er sú, að það er mest tap á hraðferðunum. Þetta veit hv. þm. S.-M. Því er hann að reyna að blekkja sjálfan sig og aðra? Auðvitað af því, að hann hefir engin rök. Nú er það svo, að Esja fær meira en helming af tekjum sínum af flutningum. Og hvað kostar það, að láta Esju taka flutning, þar sem hún annars kemur við? Það kostar svo sem ekki neitt. (SvÓ: En hver bannar henni að taka flutning?). Þeir, sem vilja láta Esju fara hraðferðir og koma ekki við nema á aðalhöfnunum, og þá þar aðeins til þess að taka farþega og póst. Annars er dálítið erfitt að rökræða við meðhaldsmenn frv., því ýmist hlaupa þeir af og til frá öllum staðhæfingum í fyrri ræðum sínum, þegar þeim er bent á, hversu fúnar þær eru, eða þeir eru svo vanhaldnir að þekkingu á málinu, að ekki er hægt að rökræða við þá.
Hv. 1. þm. S.-M. fullyrti, að Eimskipafjelagið mundi eins vel vilja taka við útgerð tveggja skipa eins og eins, eða jafnvel taka við þessari útgerð allri. Jeg kann illa við svona rakalausar fullyrðingar. Hv. þm. ætti fyrst að tala við forstjóra Eimskipafjelagsins og fá að heyra hans álit. Jeg hefi nokkrum sinnum átt tal við hann um þessi efni og fengið alveg gagnstæð svör. Það væri broslegt, ef það væri ekki um leið alvarlegt, að heyra þennan hv. þm., sem enga hugmynd hefir um útgerðarkostnað skipa, fullyrða að svona og svona verði þetta. Það þýðir ekkert að kaldhamra svona skoðanir, án nokkurs tillits til þess, sem rök og reynsla segir.
Af því umræðan er orðin löng, skal jeg ekki segja fleira í þetta sinn. En við 3. umr. skal jeg leggja fram ítarleg plögg í þessu máli, svo að hv. þm. geti ekki eftir á sagt, að þeim hafi verið þau gögn ókunnug.