29.04.1927
Neðri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í C-deild Alþingistíðinda. (2907)

53. mál, strandferðaskip

Jónas Jónsson:

Mjer þykir gott að heyra, að hæstv. forsrh. vill ekki fullyrða, að búið sje að ráðstafa þessu frv. í gröf gleymskunnar í einhverja nefndarholu hjer í Ed. En það er nú ekki ósennilegt, þar sem liðnir eru um þrír mánuðir síðan flugvjelin mín fór til samgmn. þessarar deildar og hefir ekki komið þaðan enn, frá meiri hl., að það geti skeð, að frv. þessu kunni að hlekkjast svipað á. (JÞ: Náskyld mál, eða hvað?). Já, það eru hvorttveggja samgöngubætur, og þær ódýrari en sumar, sem hæstv. forsrh. hefir verið að braska með.

Það, sem einkendi ræðu hæstv. forsrh., var misskilningur hans á óbeinum hagnaði af samgöngubótum. Ef maður hugsaði altaf eins og hæstv. ráðh., þá ætti enginn að geta áfelt menn nokkra hjer á Suðurlandi, sem fyrir mörgum árum komu til landshöfðingja og báðu hann fyrir alla muni að hætta nú við að leggja veginn austur yfir fjall, því að landinu væri það ókleift. Hæstv. forsrh. er á sama menningarstigi og þessir borgarar af Suðurlandi. Landshöfðinginn fór ekki eftir orðum þessara manna, heldur ljet leggja veginn. Auðvitað hefir þessi vegur ekki gefið neitt af sjer beinlínis. En þó munu menn nú ekki vilja missa hann. En lífsskoðun hæstv. forsrh. er undarleg mjög, þar sem hann hefir þó áður haldið einmitt því gagnstæða fram. Gildi járnbrautarinnar liggur mest í því óbeina en ekki í því beina gagni. Þar þarf ekki að búast við neinum gróða, enda þótt sumir hafi reynt að álykta þannig. Hæstv. forsrh. sagði, að það væri engin hagnaðarvon að veita mönnum betri samgöngur, eins og þó er álitið alstaðar annarsstaðar og hann sjálfur hefir líka haldið fram. En meðan ekki er komið með skynsamlega útskýringu á því, að ekki sje fjarstæða að verja ógrynnum fjár árlega í vegi, eins og gert er út um heim, en aftur á móti ekki hægt að leggja tiltölulega litla upphæð til skipa, sem gera sama gagn, þá fellur um sjálfa sig ræða forsrh., því að hún er hygð á þessari undirstöðu. Jeg verð að halda því fram, að atvinnureksturinn mundi blómgast um alt land við bættar samgöngur. Jeg vil í því sambandi benda á Loðmundarfjörð, þar sem eru afbragðs engi, en engin tök á að koma heyinu burt. „Hólar“ höfðu þar viðkomur í gamla daga, en nú verður allmikið af þessu mikla grasi til einskis, vegna þess að sölumöguleikana vantar. Í Vestmannaeyjum er aftur á móti flutt inn norskt hey, í stað þess, að þangað mætti flytja innlent hey, ef samgöngur væru góðar. Söm er aðstaðan austan fjalls, af því að það er of dýrt að flytja heyið yfir Hellisheiði.

Þá kom hæstv. forsrh. með þá ástæðu gegn þessu máli, að nú ætti að leggja veg norður, og mundi hann bæta úr þeirri þörf, sem væri fyrir meiri mannflutninga. Mjer finst hæstv. ráðh. (JÞ) vera orðinn nokkuð slæmur í landafræði, ef hann heldur, að akvegur yfir Öxnadalsheiði eða Holtavörðuheiði bæti úr samgönguþörf t. d. Húnvetninga, Skagfirðinga og Eyfirðinga að vetrinum til, þrátt fyrir snjóplóga, sem stjórnin ræður nú yfir og „veita mönnum atvinnu“, eins og drepið hefir verið á, af hv. 2. þm. Rang. Jeg hjelt líka, að hæstv. forsrh. væri það glöggur á tölur, enda þótt honum hafi oft skjátlast, að hann sæi, að fargjöld með bíl frá Reykjavík til Akureyrar hlytu að vera hærri en með strandferðaskipi. Ef hæstv. ráðh. hugsar sjer, að t. d. kaupafólk og skólafólk mundi fara í bílum þessa leið, þá skjátlast honum hrapallega. Það eru allar líkur fyrir því, að það yrði of dýrt fyrir fátækt fólk, og mundi það því heldur kjósa sjóleiðina með Esju. (JÞ: Við sjáum nú til). Það þarf ekki annað en að reikna út kílómetrafjöldann norður og athuga fargjöldin og bera þau saman við fargjöld skipanna og sjá svo, hvað af því leiðir. En það er galli á röksemdum hæstv. forsrh., að þessi vegur er ekki kominn. Í dag á nú þar að auki að fara að klípa af því fje, sem fer til þessara hluta, til sparnaðar. Mikið er því eftir enn og ekki víst, hvenær síðasti liðurinn á þessari löngu leið verður búinn. Og þó að þetta verði nú gert, sem jeg vona að verði fljótt, þá ná ekki bílarnir fyrir það til margra annara hjeraða, t. d. í Dalasýslu, Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Norður-Ísafjarðarsýslu. Strandasýslu, Norður-Þingeyjarsýslu og um alt Austurland. Mjer finst því hæstv. forsrh. hafa verið nokkuð seinheppinn að fara að minnast á þennan bílveg, sem í fyrsta lagi er enn ekki kominn, í öðru lagi á ekki fyrst um sinn að ná lengra en til Húsavíkur, og í þriðja lagi liggur undir snjó mikinn hluta árs. Þessi vegur gerir það engu síður nauðsynlegt að bæta samgöngurnar með ströndum fram milli þeirra hjeraða, sem hann nær ekki til. Jeg vil í því sambandi biðja hæstv. forsrh. að líta á það, að í strjálbýlinu í Noregi eru gerðir vegir meðfram fjörðum, sprengdir langar leiðir gegnum klappir, og þó láta Norðmenn strandferðaskip sín ganga líka eftir þessum fjörðum. Í viðbót leggja Norðmenn járnbraut víða um fjalllendi, til þess að bæta úr flutningsþörfinni. Það er ekki hægt að líkja þeim anda, sem kom fram í ræðu hæstv. forsrh., við annað en hugsunarhátt bændanna að austan, sem komu til Magnúsar Stephensen landshöfðingja fyrir 40 árum og mótmæltu því, að vegurinn austur yfir Hellisheiði yrði lagður. En bændur þessir höfðu málsbætur, sem hæstv. ráðh. hefir ekki. Þeir voru ekki verkfræðingar. Þeir höfðu ekki skrifað um samgöngumál, þeir höfðu lítið sjeð fyrir sjer. Þessa er oft minst sem dæmis þess, hve lítil mentun og þekkingarskortur getur stundum afvegaleitt menn. En það er hart, að slíkur dómur þurfi að ganga yfir hæstv. forsrh. En hann er á sömu leið. Hann veit ekki það, sem allir vita, að góðar samgöngur, hvort heldur á sjó eða landi, eru nauðsynleg undirstaða til þess að skapa atvinnurekstur. Hæstv. ráðh. gerir gys að þeirri tilllögu, að láta skipin ekki dvelja nema ef til vill nokkrar mínútur á sumum viðkomuhöfnum. En hann veit ekki, að Norðmenn, sem eru mesta siglingaþjóð Evrópu, fara svona að, svo hæstv. ráðh. verður að spotta þá líka.

Þá þótti honum kostnaðurinn mikill. Það er satt að vísu, en þá hefir okkur báðum skjátlast illa, þegar við vildum láta mörgum sinnum meiri fjárhæð til samgöngubóta fyrir einar tvær sýslur. Ef fjelagið Títan stendur við sína skilmála, þá verðum við að uppfylla skilyrðin með ríkissjóðsframlagið. Það er eins og það vaki fyrir hæstv. ráðh., að við þurfum betri samgöngur milli Reykjavíkur og næstu hjeraða í grend. En er ekki sama þörf fyrir önnur hjeruð. Skyldi ekki Hornafjörður, einhver blómlegasta sveit landsins, með sínar fáu skipakomur á ári, hafa þörf fyrir betri samgöngur? Alt, sem hæstv. ráðh. sagði viðvíkjandi tapi á rekstri þessa skips, var út í bláinn. Það er ómögulegt að vita um hallann fyrirfram. Hann sagði, að hann mundi verða um 250 þús. kr. á ári, en viðurkendi þó, að hann væri ekki nema 150 þús. kr. á skipi því, sem fyrir er. Hann kom ekki með neina skynsamlega ástæðu fyrir því, að tapið yrði meira. Ef til vill þorir hæstv. ráðh. ekki að leggja út í baráttu við erlend fjelög. Það eru einmitt líkur fyrir því, að hallinn verði minni, ef skipin eru tvö, þegar þörfinni er betur fullnægt. Esja er of lengi á leiðinni, vegna hinna erfiðu hafna og lítilla vöruslatta, svo farþegarnir kjósa heldur önnur skip. Hæstv. ráðh. vjek ekki orði að því, hvað framleiðslan mundi vaxa, vegna bættra samgangna. Jeg hefi leitt rök að því, að Austurland alt, partur af Norðurlandi, allir Vestfirðir, Dalasýsla og Snæfellsnessýsla njóti góðs af skipi þessu. Þá hefi jeg og vitnað til reynslu Norðmanna, að fólkið ferðast hópum saman með strandferðaskipunum þar, þó góðir bílvegir sjeu með ströndum fram. Þá sagði hæstv. ráðh., að við yrðum að fella niður verklegar framkvæmdir, ef við rjeðumst í þetta. En þetta eru líka verklegar framkvæmdir. Hæstv. forsrh. og hinn ráðh. líka greiddu atkvæði með því í fyrra, að ríkið legði fram 7–8 milj. til járnbrautar, sem rekin mundi verða með miklum tekjuhalla um óákveðinn tíma. Hvernig átti þá að fara um verklegu framkvæmdirnar? En jeg er nú þeirrar skoðunar, að þó tekjuhalli verði á þessu skipi fyrst í stað. Þá muni hann fljótlega fara minkandi og auk þess vinnast margfaldlega upp með vaxandi framleiðslu og þar af leiðandi auknu gjaldþoli skattþegnanna. Mjer virðist stjórnin ekki geta hugsað um neitt mál nema í pörtum. Sumstaðar álítur hún samgöngur góðar og nauðsynlegar, en á öðrum stöðum vill hún ekki af þeim vita.