11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í C-deild Alþingistíðinda. (2982)

80. mál, stjórnarskipunarlög

Þorleifur Jónsson:

Jeg hafði ekki búist við, að á þessum fundi, eftir dúk og disk, yrði farið að gera athugasemdir við afgreiðslu þessa máls, sem hjer er um að ræða. En um afgreiðslu þess er það að segja, að við fyrri atkvæðagreiðsluna voru 15 þdm. á fundi og 16 við hina síðari. Í bæði skiftin var því meir en helmingur deildarmanna viðstaddur og atkvæðafjöldi nægilegur til samþyktar, þar sem 11 af 15 greiddu jákvæði í fyrra skiftið, en 12 af 16 í hið síðara. Jeg verð að álíta, að samkv. 44. gr. þingskapanna, 2. málsgr., sje þessi afgreiðsla málsins lögleg, en þar stendur: „Engin ályktun er lögmæt, nema meira en helmingur fundarmanna, þeirra sem atkvæðisbærir eru, greiði atkvæði með henni.“

Jeg skal geta þess. að ef hjer er um eitthvað athugavert að ræða, eiga ásakanir fyrir það að koma á mitt bak, en ekki hæstv. forseta (BSv), því að jeg gegndi forsetastörfum, þegar þetta mál var afgreitt. En jeg lít svo á, að hjer hafi verið gerð lögmæt ákvörðun, sem ekki sje hægt að hnekkja.