06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
5. mál, iðja og iðnaður
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Mjer heyrðist á hv. frsm. allshn. (JörB) að hann skildi brtt. á þskj. 305 á þann veg, að leyfi lögreglustjóra ætti að gilda fyrir ákveðinn mann í 5 ár. En jeg hefi skilið hana þannig, að lögreglustjóri gæti yfirleitt ekki veitt mönnum undanþágu nema næstu 5 árin. Þetta stafar af ónákvæmu orðalagi á brtt., en eins og menn sjá, þá er mikill munur á þessu tvennu. Jeg er einmitt hræddur um, að þetta geti orðið misskilið. Ætti heldur að standa „til 5 ára í senn.“
Jeg vildi aðeins skjóta því til hv. nefndar, hvort henni fyndist ekki rjett að taka málið af dagskrá, til þess að hún gæti lagfært þetta.
Annars leyfi jeg mjer að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu málsins, því að hún hefir fallist á, að nauðsynlegt sje að setja lög um þetta efni.