19.03.1927
Neðri deild: 34. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í C-deild Alþingistíðinda. (3074)

82. mál, einkasala á tilbúnum áburði

Hákon Kristófersson:

Já, það er aðeins örstutt athugasemd. Og vildi jeg þá byrja með því að ósanna þau orð hv. 2. þm. Árn., er hann hafði eftir mjer, að jeg óski ekki eftir nýjum upplýsingum í þessu máli, vegna þess að jeg hefði fengið þær í fyrra, eða landbn. En þetta sagði jeg alls ekki, enda horfir málið alt öðruvísi við nú en það gerði þá, og margt komið á daginn síðan, sem einmitt þarf að upplýsa.

Þá vildi jeg leyfa mjer að beina þeirri fyrirspurn til vinar míns, hv. þm. Str., hvort jeg eigi að taka það til mín, það sem hann sagði um illar hvatir manna, sem talað hefðu í þessu máli, og vil jeg þá mælast til að hann játi því strax eða neiti. — En hann þegir, og verð jeg þá að taka þögn hans sem samþykki. En þá verð jeg að segja, að mjer virðist einmitt, að ef um illar hvatir sje að ræða á annað borð, þá hafi þær ráðið öllu um framkomu hans í þessu máli. — Og hann „nikkar“, og játar það líka með þögninni! (Almennur hlátur).

Hann sagði líka, að óþarfa mælgi hefði átt sjer stað nú við þessa umr., og finst mjer þá skörin færast upp í bekkinn, enda ætti hann allra manna síst að tala um óþarfa mælgi annara. Þegar menn eru svo langt leiddir, að þeir eru farnir að eigna öðrum illar hvatir, þá bregst það sjaldnast, að eitthvað meira en lítið er bogið við hugarfar þeirra sjálfra.

Annars vildi jeg ekki, að orð mín í dag yrðu skilin á annan veg en þann, að á bak við þau lægju ekki aðrar hvatir en það, að vilja fá sem sannastar upplýsingar í þessu áburðarmáli, sem hv. þm. Str. og búnaðarþing hafa kosið að grafa sem dýpst niður. Aðalkjarni og undirrót þessa máls er sú, að fyrverandi og núverandi búnaðarmálastjóra hefir verið borið á brýn, að hann hafi farið á bak við stjórn búnaðarfjelagsins og honum vikið frá embætti vegna þess. En nú er Sigurður Sigurðsson af sömu mönnum settur til að gegna embætti sínu aftur og reynt að draga fjöður yfir alla þá misklíð, sem átt hefir sjer stað milli hans og yfirboðara hans. Geta þeir nú dæmt um, sem vilja, hvort það muni vera af sjerstaklega illum hvötum fyrir mjer, að jeg óska sannra og ábyggilegra upplýsinga í öllu, smáu og stóru, þessu áburðarmáli viðvíkjandi.