23.02.1927
Efri deild: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í C-deild Alþingistíðinda. (3115)
35. mál, einkasala á saltfisk
Jóhann Jósefsson:
Háttv. 5. landsk. (JBald) hefir nú komið fram með frv. þetta í þessari hv. deild, og er það sama frv., sem hann hefir verið að flytja á undanförnum árum í hv. Nd.
Miklu af því, sem menn hafa áður haft í móti þessu máli og því fyrirkomulagi, sem frv. fer fram á, mundi vera rutt úr vegi, ef allar staðhæfingar hv. flm. væri á rökum bygðar. En því miður er frv. þetta svo, að það má frekar skoðast sem stefnuskrá eða trúarjátning hv. flm., og hann á alveg eftir, enn sem fyr, að sanna, að undirstaðan sje rjett.
Hv. flm. byrjaði á því, að skýra hv. deild frá því, að hann talaði fyrir munn hinna smærri útgerðarmanna. Jeg veit ekki hvenær þeir hafa falið hv. flm. að bera fram frv. um ríkiseinkasölu á saltfiski, eða meiri hluti þeirra. Hann getur ef til vill bent á ýmsa menn, sem í vandræðum sínum hafa hugsað sjer að koma mætti versluninni í betra horf með þessu fyrirkomulagi. En jeg mótmæli því, að þótt talað sje um „smærri útgerðarmenn“, þá sje meiri hluti þeirra þessu fylgjandi, og jeg mótmæli því, að það sje þjóðarvilji, að hlaupa þetta gönuskeið, sem frv. fer fram á.
Allir menn vita, að það er því miður alt of satt, sem hv. flm. sagði, að mikil áhætta fylgir fiskversluninni. Þeir, sem aðallega hafa fengist við hana, hafa orðið yfir stórtjóni hvað eftir annað og á ýmsum tímum.
Það getur verið, að hv. flm. álíti sjálfur, að hægt sje að draga úr áhættunni með því fyrirkomulagi, sem hann fer fram á. En þó er það svo, að „teoretiskt“ má sýna það, að líkurnar eru miklu meiri til þess, að áhættan ykist með þessu fyrirkomulagi. Jeg skal aðeins benda á það, að það yrði enginn leikur fyrir okkar land sú tilraun, að hafa ríkiseinkasölu á aðalútflutningsvöru okkar, en eiga keppinauta alt um kring, er versla með sömu vöru í frjálsri samkepni. Það má líka benda á það, að hringmyndanir eru ekki vel sjeðar meðal neytenda, og að miklu meiri líkur eru til þess, að svona fullkominn hringur mætti stórum meiri mótspyrnu heldur en sölusamlag. Sú áhætta, er hv. flm. álítur að hverfi með ríkiseinkasölu og fyrir það, að framboð verði aldrei of mikið nje óreglulegt, mundi fremur aukast. Því að þótt afnuminn yrði sá agnúi, sem er á sölufyrirkomulaginu, þá mundi það hvergi nærri vega upp á móti þeirri hættu, sem því fylgir, að einkasölufyrirkomulagið yrði tekið óstint upp af þeim, sem við erum upp á komnir með það, að jeta fisk okkar. Og það er ekki síst áhættan við söluna, er ætti að hafa þá verkan, að menn hikuðu við að taka hana af mörgum herðum, sem hún nú hvílir á, og demba henni yfir á ríkið með lagaboði.
Enn sem komið er munu þess eigi mörg dæmi, að tap fiskútflytjenda hafi bitnað beinlínis á fiskframleiðendum. Að minsta kosti munu ekki hafa orðið mikil brögð að því, eða svikum um borgun, af hálfu útflytjenda, vegna þess að þeir hafi beðið tjón.
Hv. flm. mintist á samtök útgerðarmanna um fisksölu, og dró af því þá ályktun, að engin lagfæring fengist, nema með löggjöf. En hann álítur, að lagaboð þurfi alstaðar að koma til, og er því þetta skiljanlegt. En jeg held því fram, að samtök útgerðarmanna sjeu ekki svo reynd enn, að hv. Alþingi eigi að taka fyrir kverkar þeim.
Mjer þótti hv. flm. ekki sanngjarn í garð þeirra manna, er ekki hafa getað fallist á till. hans. Hann sagði, að þeir gerðu það vegna þess, að þetta væri „princip“-mál, en ekki vegna þess, að þeir sjái ekki, að stefnan sje rjett. Jeg hygg, að sanni nær væri að segja það, að menn sjá, að stefnan er ekki rjett, heldur en að þeir geri það af þráa eða óþekt, að fallast ekki á till. hv. flm. Hann hefir ekki gert neina tilraun til að sanna, að ríkiseinkasala mundi bera góðan árangur, enda getur hann ekki bent á nein dæmi þess, hvorki hjer nje í öðrum löndum. Eitt ríki hefir farið út á þessa braut, en sneri fljótt af henni aftur, og þó eigi fyr en bæði einstaklingar og þjóð höfðu beðið stórtjón af flaninu.
Það þarf meira til en að hv. flm. leggi hjer fram slíkt frv. sem þetta og segi, að það bæti úr göllunum. Hann sagði að vísu, að kostum einkasölu hefði aldrei verið mótmælt með rökum. Það nægir ekki heldur. Hann ætti fyrst að færa fram rök fyrir kostum hennar — en það getur hann ekki, eins og jeg drap á áðan. Ríkisverslun er ekki eins mikið allsherjar hjálparmeðal til viðrjettingar eins og hv. flm. og flokksbræður hans halda.
Hv. flm. mintist á stríðsárin, og að þá hefði verslunin verið í höndum ríkisins. En þetta er óheppilegt dæmi, því að ástæður voru þá allar aðrar en nú. Við urðum þá að gera samning við eitt ríki um það, að láta af hendi allan okkar fisk, án nokkurs tillits til þess, hvert markaðsverð fiskjar var. Þetta var stríðsráðstöfun af hálfu Breta, en þetta fyrirkomulag er ekki hægt að taka upp nú, því að þótt við vildum, gætum við ekki fengið neina þjóð til að semja við okkur um það, að kaupa alla fiskframleiðslu okkar fyrir fyrirfram ákveðið verð, eins og þá var. Þetta dæmi var því rangt með farið af hv. flm. og villandi fyrir þá, sem ekki vita, hvernig í málinu liggur.
Þá sagði hv. flm., að útgerðarmenn hefði ekkert gert til þess að rannsaka markaði erlendis. Það er að vísu rjett, að þeir hafa ekki lagt fram fje handa sendimönnum, en útgerðin hefir borið sinn bróðurhluta af þessum kostnaði sem öðru, með fje því, er hún leggur í ríkissjóð árlega.
Það væri fróðlegt fyrir okkur hjer að heyra og sjá, hverjar sannanir hv. 5. landsk. getur fært fyrir því, að fyrirkomulag það, er þetta frv. hans gerir ráð fyrir, geti reynst örugt til frambúðar, og hvar annarsstaðar það hefir gefist vel. Þegar hann hefir gert það, þá er ástæða til þess að rökræða við hann lengur.
Jeg sje enga ástæðu til að vísa máli þessu til nefndar, nje ræða það á fleiri fundum hjer, því að það mun ekki leiða til þess árangurs, er hv. flm. vill.