28.02.1927
Efri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í C-deild Alþingistíðinda. (3133)
45. mál, trygging á fatnaði og munum skipverja
Flm. (Jón Baldvinsson):
Frv. þetta var borið fram í neðri deild í fyrra, og var vísað þar til nefndar, en nefndin vildi ekki láta samþykkja það. En þó varð úr, þegar það kom aftur til deildarinnar, að því var vísað til stjórnarinnar. Hefi jeg svo átt tal um málið nýlega við hæstv. atvrh., og kvaðst hann ekki mundu bera það fram. Sökum þess flyt jeg það nú aftur.
Jeg tel það þýðingarmikið, að trygður fje fatnaður og munir háseta fyrir tjóni, ef skip strandar. Og hjer er farið fram á, að atvinnurekendur greiði tryggingargjaldið, eins og venja er um aðrar slíkar tryggingar.
Það má nefna mörg dæmi um tjón, sem skipverjar hafa beðið, þegar skip hafa strandað, og þau mjög mörg tilfinnanleg. En út í það ætla jeg ekki að fara nú. Það var gert í fyrra, og þá vildi einmitt svo til, þegar málið var til umræðu, að skip hafði nýlega strandað og skipverjar mist alt, er þeir höfðu meðferðis. Aðeins björguðust sjálfir nauðulega.
Þó að það kunni að hafa komið fyrir, að skipverjar hafi fengið bætur fyrir tjón við skipbrot, eru það þó aðeins undantekningar og af handahófi greitt, því rjettur skipverja til slíkra bóta er enginn. Og þó útgerðarmenn kunni að hafa vilja á að greiða þeim bætur, þá hafa þeir oft ekki efni á því að greiða slíkar bætur. Hjer er því áreiðanlega stigið stórt spor í rjetta átt, því að slíkar tryggingar sem þessar mundu áreiðanlega verða að miklu gagni hjer, þar sem skipströnd eru svo tíð.
Óska jeg svo, að málinu verði vísað til sjútvn., að umr. lokinni.