20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í C-deild Alþingistíðinda. (3140)
119. mál, áfengisauglýsingar
Flm. (Jón Baldvinsson):
Þeim, sem líta svo á, að undanþága sú, sem gerð var á bannlögunum um innflutning spænskra vína, hafi verið gerð samkvæmt kröfu erlendrar þjóðar og verði því að skoðast sem kúgun við íslenskt löggjafarvald, þeim ætti að vera það ljúft að sýna það í verki, að svo hafi verið. Fyrir því er þetta frv. borið fram. Það er flutt að beiðni nokkurra manna úr framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands. Ástæður fyrir flutningi þess eru svo augljósar, að þær þarf ekki að skýra. Hv. þm. verða að gera það upp við sig, hvort þeir vilja fella það eða samþykkja. En mjer finst ekki nema eðlilegt, að þeir, sem líta svo á, að við höfum verið þvingaðir til þessa tiltækis, sem sje undanþágunnar frá bannlögunum, ættu að geta samþykt þetta.
Frv. fer fram á að banna hverskonar auglýsingar um áfengi, nema þær, er eigi verður hjá komist, svo sem firmatilkynningar og annað slíkt í Lögbirtingablaðinu.
Að lokinni umr. vænti jeg þess, að frv. verði látið ganga til allshn.