20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í C-deild Alþingistíðinda. (3141)

119. mál, áfengisauglýsingar

Jónas Jónsson:

Jeg hefi áður minst á það hjer í deildinni, að svo leit út við kosningar í haust, að vaxandi áhugi væri fyrir því í landinu að hefta áfengisnautn. Þarf ekki annað en minna á stór orð og loforð sumra þeirra manna, er að „kandidötununi“ stóðu. En þessi orð hafa ekki verið haldin. Nú er það komið á daginn, að það litla, sem fitjað hefir verið upp á á þessu þingi til þess að hefta áfengið, hefir alt verið felt. Þessi till. er held jeg það eina, sem fram kemur nú á síðustu tímum til þess að sýna, að menn skammist sín fyrir ástandið eins og það er. Landið heldur uppi vínverslun og leggur kapp á að auka verslunarstarfsemi með útibúum og auglýsingum um vín. Eru auglýsingar um gæði vörunnar mjög algengar í blöðum hjer.

Það mun kanske ekki þykja koma þessu við, en af sama toga er það spunnið, að landsjóður á mikið útistandandi fyrir vín hjá mönnum, sem þó fylsta ástæða er til að ætla að geti borgað. En það ætti ekki að liðast, að landið láti menn fá vín, nema þeir borgi strax.

Þetta litla frv. er spor í rjetta átt, að því er snertir yfirborðið, en lengra nær það ekki.

Jeg ætla að nota tækifærið til þess að sýna með einu litlu dæmi, hve fólk finnur til gagnvart þessu vínfargani. Mjer er skrifað af nokkrum bæjarbúum á Siglufirði. Er kvartað sárt undan því, að landið skuli hafa þar vínverslun og þess getið, að Siglfirðingar muni krefjast aukinnar lögreglu á kostnað ríkissjóðs, ef ekki verði samþ. till., sem liggur fyrir Sþ. um að fella niður áfengisútsöluna þar í kaupstaðnum. Það er hart, að neyða slíkum ófögnuði upp á kaupstað, sem ekkert vill með vínútsölu hafa. Það er engin ástæða til að vera að leika sjer að því, að útbreiða áfengið meira en er meðal fólksins. Mjer er því sönn ánægja að vera með frv. Djúpt nær það ekki að vísu, en er samt spor áleiðis.