19.02.1927
Efri deild: 9. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (3149)

33. mál, veðurfregnir frá Grænlandi

Flm. (Jónas Jónsson):

Það má nú ef til vill segja, að tilefni þessarar till. sje ekki mikið, en við nánari athugun held jeg þó, að menn muni viðurkenna, að það sje ómaksins vert að sinna þessu máli. Alþingi hefir nú á síðustu árum gert meira og meira til þess að hlynna að veðurstofunni, og þá fyrst og fremst í þeirri von, að veðurstofan geti orðið til þess að styðja sjávarútveginn og með veðurspám hindra hinar miklu druknanir hjer við land. Nú býst jeg við, að menn sjeu yfirleitt ánægðir með það, hvernig öllu hefir þokað áfram með vinnu veðurstofunnar, en þess er að gæta, að við erum ákaflega illa settir hjer, á mótum tveggja strauma, og þessar síðustu vikur, síðan vertíðin byrjaði, hafa einmitt verið átakanleg sönnun þess, hve hættuleg sjósókn er, ekki síst fyrir smábáta, og hve mikil hætta er bundin við útveginn. En í vetur hefir einmitt fengist reynsla fyrir því, að veðurstofan hefir getað sjeð fyrir veður, og að minsta kosti í sumum tilfellum getað hjálpað til að afstýra því, að sjómenn færu á sjó, þegar hættulegt veður var í aðsigi. En eitt af því, sem mest nauðsyn er á fyrir veðurstofuna, til þess að geta sjeð veður fyrir, er að fá sem mestar og áreiðanlegastar fregnir frá

Grænlandi. Danska stjórnin hefir reist þrjár loftskeytastöðvar, og það er spor í rjetta átt, að fyrri hluta dags senda allar þessar stöðvar loftskeyti, sem stöðin hjer tekur á móti. En það hefir ekki tekist að fá stærstu stöðina, sem er í Julianehaab, til að senda skeyti síðari hluta dags, en það telja menn að hafi mesta þýðingu, ef hingað kæmi skeyti þaðan um kl. 5 síðdegis. Þá mundi oft hægt að sjá fyrir norðvestan- og vestanstorma, sem hjer eru hættulegastir. Út af fyrir sig er þetta mjög lítill kostnaður. Ef til þess kæmi, að þau stjórnarvöld, sem fara með þessi mál í Danmörku, vildu fá borgun fyrir, er kostnaðurinn svo lítill, að hann er ekki teljandi, það yrðu máske 20 krónur á viku, en myndi verða stærsta skilyrðið fyrir góðum veðurspám, og gætu orðið að mestu gagni sjerstaklega nú á vertíðinni, þegar mest liggur við. Af því nú að hæstv. atvrh. (MG) er kominn, vildi jeg mega beina því til hans, þótt það heyri ekki alveg formlega þessu efni til, hvort ekki mundi unt að koma því þannig fyrir, að landssímastöðvamar í helstu verstöðvunum tækju á móti skeytum seint á kvöldin. Það hefir komið fyrir, að stöðvamar hafa verið lokaðar, þegar veðurspár hafa verið sendar út síðdegis, þannig, að menn í þessum verstöðvum hafa ekki fengið að vita um veðurspárnar fyr en daginn eftir, en jeg geri ráð fyrir, að það væri vel hægt að koma þessu betur fyrir.

Í Vestmannaeyjum veit jeg, að menn hafa gert ýmsar ráðstafanir til þess að veðurskeytin komi að sem bestum notum, og ætti það að vera ástæða til þess að ýta undir menn annarsstaðar að gera slíkt hið sama. Jeg sje svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta. Þetta mál mun heyra undir Grænlandsmálastjórnina og ætti að mega vænta þess, að hún taki vel í þessa kröfu, þar sem ekki verður um nein fjárútlát að ræða.