18.03.1927
Neðri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (316)
48. mál, notkun bifreiða
Frsm. (Hjeðinn Valdimarsson):
Allshn. hefir orðið sammála um að mæla með, að þetta frv. verði samþykt með nokkrum breytingum. í staðinn fyrir, að frv. gerir ráð fyrir þrem skoðunarmönnum, vill nefndin breyta ákvæðinu þannig, að atvinnumálaráðherra skuli löggilda skoðunarmann eða skoðunarmenn, og verður það þá á valdi ráðherra, hvort heldur verði einn maður, sem hafi þetta að aðalatvinnu, eða fleiri, sem hafi það að aukaatvinnu. Þá kom nefndin sjer saman um það, að skoðunarmaður skuli geta ákveðið, hve margir farþegar skuli vera í hverri bifreið. Það er kunnugt, að í leigubifreiðum eru oft miklu fleiri farþegar en hæfilegt er, og það svo, að hætta getur stafað af. Þá vildi nefndin láta atvrh. ákveða valdsvið skoðunarmanna með erindisbrjefi, og þar í yrði sett, að skoðunarmenn gætu stöðvað þær bifreiðar, sem eitthvað finst athugavert við, og sömuleiðis, ef eitthvað væri athugavert við ökuskírteini bifreiðastjóra.
Þá er ennfremur eitt atriði, sem ekki er í frv., sem sje það, að nefndin leggur til, að ábyrgðartryggingin sje hækkuð. Með lögum frá síðasta þingi var það ákveðið, að hún skyldi vera 3 þús. kr. fyrir fyrstu bifreiðina, sem eigandi hefir, og 1 þús. kr. fyrir hverja bifreið umfram, og 1500 kr. fyrir tvíhjóla.
Þetta þótti meiri hl. nefndarinnar of lágt, ef slys bæri að höndum, og leggur hann til, að 17. gr. laganna verði breytt þannig, að fyrir 3000 kr. komi 10000 kr., fyrir 1000 kr. komi 3500 og fyrir 1500 komi 5000 kr. Nefndin vill skjóta því til hæstv. atvrh., að hentugt væri, ef þetta frumvarp verður samþykt, að stofna sjerstaka deild við Brunabótafjelagið til þess að annast þessar tryggingar, og tæki deildin þá einnig að sjer tryggingar á bifreiðunum sjálfum, kaskó, þar sem vel fer á að hafa þær tvær tryggingargreinar saman.
Einn hv. nefndarmaður (JK) hefir sjerstöðu í málinu, einkum að því er tryggingarupphæðina snertir, og mun hann gera grein fyrir því.