24.03.1927
Sameinað þing: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (3190)
41. mál, síldarverksmiðja á Norðurlandi
Flm. (Magnús Kristjánsson):
Jeg hefi ekki mikið að athuga við ræðu hv. þm. Ak. (BL), og það því síður vegna þess, að hann tók fram, að athugasemdir hans væru aðeins gerðar til skýringar málinu, en ekki til þess að tefja það eða leggja stein í götu þess.
Honum fanst okkur ekki standa fyrir þrifum vöntun á samskonar starfrækslu eins og till. fer fram á, að tekin verði upp. En þetta er aðeins önnur hlið á málinu. Það stoðar lítið, hvað margar verksmiðjur eru hjer starfandi, ef reynslan sýnir, að þessi viðskifti okkar við hinar erlendu verksmiðjur eru óhagkvæm, og eftir því, sem jeg best veit, eru þau það. Jeg held, að það sje búið að skýra það nóg, að okkur sje fullkomin nauðsyn á að stofna slíka verksmiðju til þess að verja aðstöðu okkar. Hjer er því um nauðvörn þjóðarinnar að ræða, og till. fram borin til þess að gera okkur samkepnisfæra á þessu sviði.
Ef sannanlegt væri, að verksmiðjur þessar störfuðu alþjóð til hagsmuna, þá væri hægt að segja, að skilningur hv. þm. Ak. (BL) væri rjettur. En þegar það er ekki, heldur það gagnstæða, þá verð jeg að halda fram minni till. Hann mun líka undir niðri líta svo á, að hjer þurfi að koma öryggisráðstafanir, svo að framleiðendum sje trygt sanngjarnt verð fyrir vörn sína.
Jeg verð þá að koma að því, sem í raun og veru er aðalatriðið í þessu máli, og það er þetta: Getur skipaflotinn íslenski, sem þennan atvinnuveg stundar, nokkum tíma staðið straum af öllu því fje, sem í hann hefir verið lagt, þannig að hann geti svarað vöxtum og afborgunum af höfuðstólnum og orðið lífvænlegur fyrir þá, sem hann stunda? Það er í raun og veru aðalspurningin í þessu máli. Væri sá skilningur hv. þm. Ak. (BL) algerlega rjettur, að útlendu síldarverksmiðjurnar gætu ekki svarað kostnaði, ef þær greiddu hærra verð en þær hafa gert, þá finst mjer, að það sje mjög mikill vonleysisbragur yfir framtíðarmöguleikum útvegarins, ef svo er, en hv. flm. (BL) fullyrti það ekki, sem betur fór, því hafi svo verið að undanförnu, að þær hafi greitt það hæsta verð, sem þær hafa með nokkru móti getað, til þess að hafa aðeins hæfilegan arð af sínu fyrirtæki, þá sje jeg ekki, að í því liggi annað en nokkurskonar dauðadómur á útveginn. En jeg hygg, að þessir menn sjeu fyrst og fremst kaupmenn, og að það hafi aðallega gert vart við sig hjá þeim á þann hátt, að þeir hafi ákveðið verðið læga en góðu hófi gegnir, og þótt jafnvel nokkur samkepni hafi átt sjer stað hjá þeim, þá sje því svo varið með þeim mönnum, sem hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta, þótt þá kunni að greina á um eitthvað, að þeir geti tekið saman höndum um það að skapa sjer betri aðstöðu gagnvart sínum viðskiftamönnum. Og þess vegna held jeg því fram, að í mörgum árum hafi framleiðendurnir fengið lítið meira en hálfvirði, og í öðrum tilfellum þriðjungi minna fyrir sína vöru en sanngjarnt hefði verið og þurft hefði, til þess að útvegurinn hefði nokkrar framtíðarvonir. Þess vegna álít jeg, að ekki hafi enn þá komið fram neinar röksemdir, sem geti gert það að verkum, að hægt sje á þessu stigi málsins að álíta, að þetta sje ótímabær tillaga.
Þá sagði hv. þm. Ak. (BL), að ef gerðar væru þær ráðstafanir, sem leiddu til þess, að varan hækkaði í verði um þriðjung, þá myndi það í raun og veru leiða til þess, að það yrði lítt hugsandi, að nokkur maður gæti hugsað til að kaupa síld til söltunar. Jeg er ekki alveg sammála um, að svo sje, vegna þess að á meðan síldarverksmiðjumar geta ekki boðið hærra verð heldur en boðið er fyrir síld til söltunar, þá finst mjer í raun og veru, að sú samkepni geti ekki verið ákaflega hættuleg fyrir síldarsöltunina; það er fyrst þegar verksmiðjurnar væru farnar að sækjast svo mikið eftir þessari vöru, að þær byðu jafnvel hærra verð heldur en menn sæju sjer fært að kaupa fyrir til söltunar, þá fyrst væri að þessu komið. En hins vegar álít jeg, þó að svo skyldi fara, sem jeg nú ekki geri ráð fyrir, þá væri hættan ekki svo ýkjamikil, því að það væri aðalatriðið að fá sannvirði fyrir vöruna, svo að atvinnuvegurinn geti borið sig. Það er því ekkert aðalatriði, hvort saltað er eða brætt, aðeins að útgerðarmenn geti fengið það verð, sem þeir þurfa, svo að af atvinnurekstrinum geti orðið dálítill hagnaður.
Þá skal jeg minnast örfáum orðum á aðstöðuna, eftir því hvar staðurinn yrði valinn, en í raun og vera snertir það ekki svo mjög ummæli hv. þm. Ak. (BL). Jeg hygg, að við sjeum nokkurn veginn sammála um það atriði, að það sje ekkert því til fyrirstöðu, að rannsókn fari fram á fleiri stöðum, heldur skal jeg þá víkja örfáum orðum að ræðu hæstv. atvrh. (MG).
Jeg er hæstv. atvrh. (MG) þakklátur fyrir þá upplýsingu, sem hann hefir gefið um, að stjórnin vill alls ekki skorast undan því að láta þessa rannsókn fara fram, og það er rjett skilið hjá hæstv. ráðh. (MG), að jeg bjóst ekki við, að það þyrfti að hafa verulegan kostnað fyrir ríkissjóð í för með sjer, því hefði svo verið, þá myndi tillagan hafa verið borin upp í nokkuð öðru formi, en jeg vil samt taka það fram, að hæstv. ráðh. má ekki vera ákaflega viðkvæmur fyrir kostnaðaratriðinu, því að jeg geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. yrði aldrei legið mjög alvarlega á hálsi fyrir það, ef hann sýndi verulegan áhuga á að greiða fyrir málinu, jafnvel þótt það kynni að baka ríkissjóði einhvern dálítinn kostnað. Og jeg vona og treysti því, að hæstv. ráðh. láti ekki það atriði út af fyrir sig hafa þau áhrif, að sú rannsókn, sem maður getur búist við, að fari fram, verði ófullnægjandi. En með því nú að verið er að athuga þetta mál hjer, þá er í raun og veru varla hægt að komast hjá því að minnast örfáum orðum á það, hvernig ástatt er nú á Siglufirði. Það ástand, sem þar hefir skapast, þetta ráðleysu-ástand, sem búið er að ríkja þar um langt árabil, er það, að allar þær ágætu lóðir, sem þar eru, sem kalla má að liggi í þessum hjartastað Norðurlands, ef svo má að orði kveða, og að minsta kosti má segja það, þegar þau orð eru sett í samband við ummæli, sem oft er haldið fram, að sjórinn sje sú sanna gullkista landsins, þá verður ekki fjarri sanni að álíta, að lóðirnar á Siglufirði sjeu mikils virði, ef ekki væri búið fyrir margra ára ráðleysi að svifta ríkið þeim arðsvonum og arði, sem mátt hefði verða af þessum lóðum og þessari dýrmætu eign ríkisins, sem verið er smátt og smátt að sleppa í hendur útlendinga, sem ekki eingöngu hefir gert það að verkum, að ríkið hefir tapað stórfje, heldur hefir það líka bægt fjölda landsmanna frá því að geta notið eðlilegrar aðstöðu til að geta hagnýtt sjer gæði lands og sjávar á þessu sviði. Jeg hygg, að það sje nú komið svo, að þessi útlendinga-yfirgangur á Siglufirði sje orðinn þess valdandi, að lóðir, sem ríkið á, hafa gengið kaupum og sölum, þannig að fyrir hverja eina krónu, sem útlendingar hafa greitt í leigu fyrir lóðirnar á bestu stöðum, muni þeir nú taka í sinn vasa alt að 1000 krónum. Hygg jeg þannig, að landið muni bera uppi sem svarar einni krónu á móti hverjum þúsund, sem því bæri með rjettu, ef hægt væri að kippa þessu í lag. En þetta er það sorglega, sem viðgengst dag frá degi, að þessar lóðir, sem látnar eru af hendi fyrir nær ekkert, ganga kaupum og sölum fyrir slíkt geipiverð, eða er það ekki ánægjulegt fyrir innlenda menn að þurfa að greiða 10–20 þús. krónur í leigu fyrir pláss, sem einhver útlendingur hefir verið svo heppinn að klófesta fyrstur, gegn því að greiða 20–30 krónur fyrir það? Þetta er ástand, sem ekki er ástæðulaust að benda á í þessu sambandi, og úr því að jeg fór að minnast á þetta, þá vildi jeg meðal annars benda á það, þegar gert er ráð fyrir að láta rannsaka, hvort þarna væri hæfilegur staður, að jeg veit til þess, að ein lóð, sem látin hefir verið af hendi fyrir lítið sem ekkert, mun nú vera auð, en auðvitað kostar hún stórfje, ef sá, sem umráðarjettinn hefir, getur fengið sínum vilja framgengt. En jeg vildi óska, að hæstv. stjórn vildi láta athuga það, hvort hún gæti ekki fengið umráð yfir landinu aftur, t. d. þegar maðurinn, sem hafði það á leigu, kynni að vera flosnaður upp eða orðinn gjaldþrota, því að þá álít jeg það mjög alvarlegan hlut, ef lóðirnar halda áfram að ganga kaupum og sölum með hækkandi verði. Þetta álít jeg að sje atriði, sem tímabært sje að athuga, og það er að minsta kosti fullkomin ástæða til um hina svokölluðu Hendriksenslóð á Siglufirði, hvort ekki væri sá rjetti tími fyrir ríkið til þess að reyna að ná tökum á þeirri lóð, hvað sem kann að verða um framkvæmdir tillögu minnar.
Það er svo sorglegt ástand, sem nú ríkir á Siglufirði, að það væri rjett að taka þessa lóð, jafnvel þótt hún kostaði margfalt á við það, sem hún var látin af hendi fyrir upphaflega. Það verður einhvern tíma að nema staðar með þetta lóðabrask á Siglufirði, og vildi jeg því nota tækifærið til að beina þessu til hæstv. stjórnar.
Skal jeg svo ekki fjölyrða meira um þetta, því að það virðist vera svo gott samkomulag um þetta mál, að það gefur ekki tilefni til lengri umræðu en orðið er, því að mjer virðist, að hv. þm. hafi fullan skilning á þessu máli, og ef svo er, þá er jeg í engum vafa um það, að till. muni fá góðan byr hjer í þinginu.