24.03.1927
Sameinað þing: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (3192)

41. mál, síldarverksmiðja á Norðurlandi

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vildi aðeins, út af því, sem hv. flm. (MK) sagði um lóðirnar á Siglufirði, upplýsa það, að þær eru leigðar, eins og kunnugt er, til alllangs tíma, mig minnir, að það sje venjulegast til 50 ára, og fyr en sá tími er liðinn getur ríkissjóður ekkert annað gert til þess að fá notkunarrjett yfir þeim en að kaupa þann rjett aftur af hlutaðeigendum, og hann getur þá ekki komist að betri kjörum en að sæta því, sem aðrir kunna að bjóða í þann sama rjett, og það skiftir ekki máli, þótt hlutaðeigandi verði gjaldþrota eða deyi, því að rjetturinn, samkvæmt samningi, gengur yfir á þrotabú hans eða til erfingjanna, og þess vegna verður að kaupa hann af búinu, ef það á að ná honum aftur, alveg eins og maðurinn hefði ekki orðið gjaldþrota eða dáið. Þetta veit jeg að flestum muni vera ljóst, og jeg hygg, að enn þá muni vera alllangur tími þar til nokkur af þessum samningum fellur úr gildi á Siglufirði, vegna þess, að leigutíminn sje á enda, því að það er ekki svo langur tími síðan lóðaútmæling þar byrjaði fyrir alvöru.