25.04.1927
Sameinað þing: 7. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í D-deild Alþingistíðinda. (3246)

107. mál, smíði brúa og vita

Hjeðinn Valdimarsson:

Það mun hafa verið 1909, sem Jón Þorláksson, þáverandi landsverkfræðingur, kom upp vjelaverkstæði landssjóðs, til þess að gera við áhöld og smíða brýr og vita. Fyrirtæki þetta var hið þarfasta og gekk vel langan tíma, og er enginn vafi á því, að með þessu sparaðist ríkissjóði mikið fje. Skyldu menn halda, að þetta fyrirtæki, sem lengi hafði vel gefist, mundi ekki hafa gefist síður á síðustu árum. En það hefir verið lagt niður að miklu leyti fyrir nokkrum árum. Nú vil jeg spyrja hæstv. atvrh. (MG), hvaða ástæða hafi verið til þess, að landssjóðsvinnan hefir verið flutt úr þessu verkstæði eftir stríðið, aðallega til hlutafjelagsins „Hamars“, einmitt á þeim tíma, sem vitamálastjóri og vegamálastjóri gerðust hluthafar í Hamri. Þetta er mjög tortryggilegt. Ríkissjóður hafði keypt dýr áhöld og vjelar til þess að annast sjálfur alla slíka smíði, hafði æfða og duglega smíði og fyrirtækið var alt í fullum gangi. Svo er fyrirtækinu tvístrað, vjelarnar leigðar „Hamri“, mönnunum sagt upp, og þeir munu nú vinna í „Hamri“, en húsin standa auð að miklu leyti. Hvernig getur slíkt borgað sig? Hæstv. atvrh. (MG) gat þess, að á s. l. ári hefði aðeins verið unnið fyrir 1260 kr. í „Hamri“ fyrir vegagerð ríkissjóðs, en þar var þá jafnframt unnin mikil önnur ríkissjóðsvinna; t. d. voru smíðuð þar öll sjómerki fyrir vitamálastjóra, og undanfarandi ár mun ríkissjóðsvinnan í „Hamri“ hafa skift tugum þúsunda.

Í sambandi við þetta er rjett að minnast nokkuð nánar á ýmsar ráðstafanir vegamálastjóra. Hann hefir umráð yfir miklu fje ríkissjóðs, og stjórnin virðist ekkert skifta sjer af því, hvernig hann fer með það. Hæstv. atvrh. (MG) hefir nýlega lýst því yfir í hv. Ed., að sjer væri ekki kunnugt um. hvaða kaup vegamálastjóri greiddi fyrir ríkissjóðsvinnu í Skagafirði og Eyjafirði. Það lítur svo út sem vegamálastjóri sje alveg einvaldur um þetta. En það minsta, sem hægt er að heimta af hæstv. stjórn, er það, að hún viti í stórum dráttum um kauptaxta ríkissjóðs og sjái um, að hann sje í nokkru samræmi við annað kaupgjald í landinu, mismunandi eftir staðháttum.

Rafmagn var fyrst lagt í vjelaverkstæði ríkissjóðs frá Völundi 1919. Síðar þykir vegamálastjóra rjett að breyta til, og er þá keyptur Ellwemótor og raflögnunum öllum breytt. Þetta er ekki löngu áður en bæjarrafmagnið kom, en þá var skift um að nýju, rafmagnið tekið hjá bænum og öllum raflagningum breytt aftur. Þetta alt eru einkennilegar ráðstafanir. En rafvirkjafjelag eitt hjer í bænum, sem vegamálastjóri á hlut í, lagði rafmagnið aftur í bæði skiftin, og Ellwemótorinn var líka keyptur af því fjelagi. En hjer gerast fleiri æfintýri. Eftir að mótorinn hefir verið tekinn úr vjelaverkstæðinu, er farið með hann í „Hamar“ og þar gert við hann fyrir um 800 kr. Síðan er hann sendur til Hvanneyrar, gekk ekki þar, endursendur hingað vegna ónógrar viðgerðar og liggur nú ónotaður í ruslakistunni. Auðvitað var nýr Ellwemótor keyptur handa Hvanneyri. Hver hagnast á þessu? Ekki ríkissjóður, svo mikið er víst.

Jeg vil þá um leið beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvrh. (MG), hvernig sje hagað yfirleitt raflögnum í opinberar byggingar, hvort þetta sama rafvirkjafjelag hafi þar enn einveldi, eða hvort útboð sjeu gerð, sem jeg raunar hefi ekki orðið var við í blöðunum.

Um 1920–22 eru keyptar 4 dráttarvjelar, 45 hestafla, og var tilætlunin að snúa með þeim grjótmulningsvjel. Það mun þó hafa sýnt sig, að til þess þurfti aðeins 8 hesta mótor, sem þá auðvitað var keyptur frá Noregi. Nú hafa tvær dráttarvjelar legið 2 ár ónotaðar í áhaldahúsinu, ein var seld Copland, en sú fjórða var seld fyrir gjafverð kaupsýslumanni einum hjer í bænum. Ríkissjóður virðist ekki hafa haft mikið upp úr þessum kaupum verkfræðingsins. Einnig voru nokkrir skurðplógar keyptir 1921 af þessum hagsýna embættismanni. Þeir liggja enn í umbúðum í áhaldahúsinu. Þá keypti vegamálastjóri Maxwell-fólksflutningsbíl til þess að skutla sjer um vegina. Hann var keyptur af venslamanni vegamálastjóra, en hann var lítið notaður, enda lítt nothæfur, og seldur í fyrra fyrir gjafverð. Mörg þús. kr. höfðu áður farið í viðgerð á honum. Þess má geta, að jafnvel verkfæraskerpingar eru nú gerðar hjá ýmsum járnsmiðum úti í bæ, og enginn járnsmiður er nú eftir í vjelaverkstæðinu, sem áður var sístarfandi.

Mjer finst, að þessi dæmi um framkvæmdir vegamálastjóra sjeu næg til þess að sýna það, að full þörf sje á því, að hæstv. stjórn hafi betra og nákvæmt eftirlit með því, hvernig þessi embættismaður veltir sjer í fje ríkissjóðs.