24.02.1927
Efri deild: 13. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í D-deild Alþingistíðinda. (3277)
34. mál, kennaraskólinn
Flm. (Jónas Jónsson):
Þegar kennaraskólinn var bygður hjer í Reykjavík, hafði staðið töluverð deila milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur um það, á hvorum staðnum hann skyldi bygður. Eins og kunnugt er, hafði fyrv. fræðslumálastjóri, Jón sál. Þórarinsson, komið á fót vísi til kennaraskóla í sambandi við gagnfræðaskólann í Flensborg. Vildu Hafnfirðingar því, að skólinn yrði þar. Reykjavík lagði aftur á móti mikla áherslu á að fá hann hingað og bauðst til að gefa lóð undir hann. Það gerði hún, en þó ekki höfðinglegar en það, að lóðin var alt of lítil og lá utan bæjar. Mátti því segja, að Reykjavík færist ekki sem skyldi, þegar hún var búin að vinna sigur yfir Hafnarfirði. Á lóð þessari bygði landið svo timburhús, sem kostaði að mig minnir 25 þús. kr. En svo illa var frá því gengið, að varla hefir verið í því búandi. Þá hefir og lóð skólans ekki verið girt. Yfir höfuð að tala hefir svo illa verið til skóla þessa vandað, að slíks mun vart dæmi annarsstaðar um jafnvirðulega stofnun.
Þegar lóð landsspítalans var ákveðin, var hún höfð allstór, með tiliti til þess, að áður langt liði yrðu bygðar þar viðbótarbyggingar í viðbót við aðalbygginguna. Meðal annars er gert ráð fyrir að lengja hann með tveimur álmum. Þá hefir og verið talað um byggingu á baklóðinni. Á þar að koma viðbótarþvottahús fyrir spítalann og starfsmannabústaður. Þessari viðbótarbyggingu er einmitt ætlað að standa á lóð kennaraskólans, og vegur þaðan að Skólavörðunni verður látinn liggja yfir grunn hans.
Það er nú fyllilega ljóst, þar sem annarsvegar á í hlut jafnvegleg bygging sem landsspítalinn, og hinsvegar bygging eins og kennaraskólinn, sem lítil rækt hefir verið lögð við, þá verður hann að flytjast burtu. Að vísu getur það dregist um nokkur ár, að hann verði fluttur, en þó er óvíst, hvenær þingi og stjórn dettur í hug að láta gera þessar viðbótarbyggingar þarna, kannske þegar minst vonum varir.
Það, sem skólann vantar tilfinnanlegast nú, er heimavist, æfingaskóli, helst með 6 bekkjum, og herbergi fyrir bókasafn og ýmiskonar kenslu. Mjer finst nú leiða af sjálfu sjer, verði honum ekki mjög bráðlega ætlaður framtíðarstaður, þá verði ekki bætt úr vandræðum þeim, sem hann á nú við að búa. En það getur aftur haft skaðleg áhrif á uppeldi landsmanna, ef kennaramentuninni er lítið sint. Það, sem mest hefir hjálpað kennaraskólanum til þessa, er það, að hann hefir altaf, þrátt fyrir alt, verið mjög heppinn með starfsmenn. Þeir hafa gert mikið úr litlu, en hafa ekki nema að litlu leyti getað bætt nemendum upp öll þau óþægindi, sem ill húsakynni og margskonar vanræksla af hálfu hins opinbera hafa valdið.
Jeg vil nú beina þeirri áskorun til hæstv. stjórnar, að hún leitist fyrir hjá bæjarstjórn Reykjavíkur um það, hvort ekki muni hægt að fá góða lóð á hentugum stað handa skólanum. Reykjavík sótti mikið eftir að fá hann, og nú getur hún bætt úr sínum fyrri gerðum með því að skera ekki við neglur sjer lóð handa honum. Og jeg lít svo á, að framtíðarheimili hans eigi að vera við Skólavörðutorgið. Einmitt þar sem listasafnið er, þar sem háskólinn, stúdentagarðurinn og dómkirkjan verða, finst mjer aðalstofnun íslenskrar kennaramentunar eiga vel heima, auk þess sem búast má við, að þar verði afgangur af vatni úr Laugunum, frá 3–4 fyrstu byggingunum, sem þar verða reistar, er nægði til að hita skólann upp með.
Jeg geri nú ráð fyrir, að bæjarstjórnin sjái sóma sinn og haldi skólanum hjer, og láti því af hendi nægilega stóra lóð handa honum. Hvar í Skólavörðuholtinu hún ætti að vera, skal jeg ekki um segja, en jeg vil benda á, að samkvæmt uppdrættinum er enn þá stórt svæði ótekið milli stúdentagarðslóðarinnar og listasafnsins. Þegar lóð þessi er fengin, sem jeg býst við að verði ókeypis, eins og lóð stúdentagarðsins, þá er í till. minni farið fram á, að stjórnin láti gera frumdrætti að nauðsynlegum byggingum, vegna skólans, sem miðaðir sjeu við þennan stað, og láti gera þá í samráði við forstöðumann skólans og kennaralið, því að þeir skilja best, hvernig byggingin þarf að vera. Er svo til ætlast, að þetta verði tilbúið fyrir næsta þing. Þó að alt gangi vel, er ekki ætlast til, að farið verði að ómaka húsameistara með að gera nákvæma teikningu af öllu því, sem skólinn þarf, heldur aðeins að fullgera teikningu og áætlun um heimavist fyrir alt að 40 nemendur. Og hefi jeg bestu von um, að hæstv. stjórn taki vel í það, þar sem hún hefir komið fram með frv. um stofnun heimavistar fyrir mentaskólann. En heimavist fyrir kennaraskólann er í raun og veru miklu nauðsynlegri. Því að margir þeirra stúdenta, er taka próf hjer, eru nemendur af Akureyrarskólanum og hafa því notið heimavistar þar, auk þess sem fjöldi þeirra á heimili hjer í bænum. En allir þeir, sem kennarapróf vilja taka, verða að taka það hjer og jafnframt að ganga gegnum skólann. Og það eru flest menn utan af landi, sem vinna fyrir sjer sjálfir, og er ilt, að þeir lendi í miklum skuldum á námsárunum, áður er þeir hverfa að hinu illa launaða starfi.
Jeg vona nú, að hæstv. stjórn sjái, að hjer er stefnt í rjetta átt, og bæti úr gamalli vanrækslu með því að taka vel í 3. lið till. minnar, og láti gera fullkomna teikningu af heimavist fyrir kennaraskólann. Að endingu skal jeg taka það fram, að það virðist engum vandkvæðum bundið, þó að nemendur yrðu að ganga af Skólavörðuholtinu niður í skólann, þangað til honum verður svift burt af lóðinni.