24.02.1927
Efri deild: 13. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í D-deild Alþingistíðinda. (3278)

34. mál, kennaraskólinn

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg tók ekki eftir því, hvort hv. flm. (JJ) ætlaðist til þess, að þessu máli yrði vísað til nefndar. (JJ: Jeg ætlaðist til þess). Fyrst hv. þm. hefur ekki beinlínis gert það að tillögu sinni, þá vil jeg leyfa mjer að leggja til, að því verði vísað til mentmn. Jeg skal því ekki hefja miklar umræður á þessu stigi málsins, en vil aðeins benda á, að stjórnin hefir á þessu þingi flutt frv. um samskóla Reykjavíkur. Vert er þá að athuga, hvort ekki er hægt að ætla kennaraskólanum pláss þar líka. Að minsta kosti hugsa jeg, að rjett sje að hafa lóðina, sem fengin verður í þessum tilgangi, svo stóra, að hægt verði að bæta við fleiri skólum, t. d. kennaraskólanum og stýrimannaskólanum, en þeir eru báðir í timburhúsum, sem verða lítt nothæf, er fram líða stundir. Bæði þetta og annað mun þá verða athugað í nefndinni.