29.04.1927
Efri deild: 61. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í D-deild Alþingistíðinda. (3284)
34. mál, kennaraskólinn
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Hv. 1. landsk. (JJ) hefir ekki getað upplýst, á hverju hann byggir það, að ákvörðun hafi verið tekin um það fyrir nokkrum árum, að lóð kennaraskólans skyldi falla til landsspítalans. Jeg hugsa helst, að sannleikurinn sje sá, að slík ákvörðun hafi aldrei verið tekin. Jeg veit ekki til, að fyrirætlanirnar um framtíðarbyggingu landsspítalans taki inn á lóð kennaraskólans, að minsta kosti ekki þær, sem jeg hefi sjeð. En þó svo væri, að teikningar húsameistara sýndu, að lóð landsspítalans teygði sig inn á lóð kennaraskólans, þá er það alls ekki sama og það, að lóð hans eigi að renna til landsspítalans. Jeg hygg helst, að það atriði sje óákveðið enn.
Hv. flm. (JJ) skýrði 2. lið til. svo, að mjer skildist, að þar væri átt við frumdrætti að viðbótarbyggingu við skólann. En það verður þá ekki sjeð af 2. lið eins og hann er. Jeg ætla þó að taka skýringu hv. flm. (JJ) góða og gilda.
Jeg verð nú að segja það um stað þann, sem valinn hefir verið handa hinum opinberu byggingum, að hann er vandræðastaður, vegna þess, meðal annars, að ekki má búast við, að vatnsveita bæjarins verði þannig í framtíðinni, að byggingar þær, sem verða þarna efst uppi á holtinu, hafi viðunandi vatn. Auðvitað eru það aðrir, sem ráða því, hvort þær verða settar þarna eða ekki, en jeg hefi þó sagt hlutaðeigandi mönnum það, sem mína skoðun, að það væru mistök að vera að safna sem flestum opinberum byggingum á þann stað, sem er illa til þess hæfur, nema þá fyrir þau hús, sem vegna lítillar notkunar hafa ekki sjerstaka þörf fyrir vatnsveitu í fullkomnu lagi.