03.05.1927
Neðri deild: 65. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í D-deild Alþingistíðinda. (3294)
117. mál, sameining póststöðva og símastöðva
Flm. (Magnús Torfason):
Jeg hefi ásamt hv. þm. Str. (TrÞ) borið fram þessa till. til þál. um sameining póststöðva og símstöðva, þar sem deildin skorar á hæstv. landsstjórn að rannsaka, að hve miklu leyti megi sameina rekstur síma og pósts. Tilefnið er fyrst og fremst það, að hjá flestum stórþjóðum eru þessar starfsgreinir reknar saman. Er það ákaflega eðlilegt, svo skyldar sem þær eru hvor annari; síminn í raun rjettri ekki annað en fljótari og að ýmsu fullkomnari tegund póstsendinga. Ennfremur er það vitanlegt, að fyrir þingi Dana liggur nú frv. þess efnis, að koma síma og pósti undir eina stjórn og sameina starfrækslu þeirra eins og unt er. Þar er þetta fyrst og fremst gert til sparnaðar, en vitanlega er það jafnframt til hagræðis fyrir landsfólkið. Hjer á landi kemur það sjer oft illa, einkum til sveita, að þurfa á tvo staði með símskeyti og brjef. Einkum á þetta við um símaávísanir, sem nú eru orðnar algengar hjer á landi og verða að fara gegnum bæði pósthús og símstöð. — En það, sem sjerstaklega fekk okkur flm. til að bera þessa till. fram nú, var það, að vænta má, að hægt verði innan fárra ára að koma þessari breytingu á, ef nú þegar er byrjað á undirbúningi þess. En annars mætti vænta, að það tæki miklu lengri tíma. Þannig stendur sem sagt á, að nú er símstjóraembættið laust, en póstmeistari, góðrar minningar, er aldurhniginn og verður því sennilega ekki mjög mörg ár enn í stöðunni. Ef símstjórastaðan yrði ekki veitt, ætti því innan skamms tíma að mega sameina stöðurnar, án sjerstaks tilkostnaðar.
Jeg skal taka það fram, að mjer kemur ekki til hugar, að annar en fagfræðingur megi standa fyrir símanum, og sama máli gegnir um póstinn. En jeg ætlast til, að þeir verði einskonar deildarstjórar, hvor fyrir sinni stofnun, en yfir þá sje settur maður, sem vinni að nánari samvinnu milli síma og pósts. Sá maður þarf fyrst og fremst að vera góður búmaður, víðsýnn og hagsýnn.
Svo þykist jeg ekki þurfa að fara um þetta fleiri orðum. Í raun og veru er nú alt sagt, sem með þarf að svo stöddu. Jeg býst við, að hæstv. stjórn sje fús til að athuga málið, eigi síður fyrir þá sök, að hvað mannahald snertir er verkefni síma og pósts hvors um sig misjafnt á ýmsum tímum. Símamenn hafa oft mikinn tíma aflögu, og eins er um póstmenn. Þess vegna er það, að þetta myndi nýtast betur, hvað mannaflann snertir, með því að þetta yrði haft sameiginlegt.
Þá vil jeg taka það fram um leið, að landið vill spara öll útgjöld, sem hægt er, en þessar stjettir, sem þykjast hafa orðið illa úti og vera lágt launaðar, þær ættu að geta bætt fyrir sjer með þessu að ýmsu leyti.
Jeg álít sem sje, að þessi till. sje mjög meinlítil, og vænti jeg, að henni verði vel tekið af hv. deild og hæstv. atvrh. (MG), því að það er vitanlegt, að það verður ekki komist hjá því að taka þetta mál til athugunar. Það eina, sem þessi till. myndi beinlínis hafa í för með sjer, er það, að landssímastjóraembættið mundi ekki verða veitt á meðan á þessari rannsókn stæði, nje heldur fyr en þingið hefði fengið að heyra tillögur hæstv. stjórnar um það.