11.04.1927
Efri deild: 50. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

48. mál, notkun bifreiða

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Eins og hv. dm. er kunnugt, hafði allshn. lagt til við 2. umr. þessa máls, að hámark væri sett fyrir því, hve stærri bifreiðafjelögum bæri að tryggja hátt bifreiðar sínar, til tryggingar því, að hægt væri að ganga að einhverju fje, ef skaðabótakröfur yrðu gerðar vegna meiðsla eða slysa við akstur bifreiðarinnar. Nefndin hefir orðið þess vör síðan við 2. umr., að þótt lögin um notkun bifreiða frá 1926 geri ráð fyrir, að viðurkent verði af landsstjórninni eitthvert tryggingarfjelag, sem bifreiðaeigendum sje vísað til og skylt að tryggja hjá, þá er enn ekki farið að gera nokkrar ráðstafanir í þessa átt. Á hinn bóginn gera lögin frá síðasta ári ráð fyrir því, að ef þess er sjerstaklega óskað af bifreiðaeigendum að setja lögreglustjóra sæmilega tryggingu fyrir því, að þeir geti int af hendi skaðabótagreiðsluna, þá sje þeim það heimilt. Það er því nauðsynlegt að gera breytingu á lögunum frá 1926 — og er sú brtt. á þskj. 348 — til þess að sú breyting, sem nefndin hafði áður sett um hámarkið, geti notið sín, þegar bifreiðareigandi kýs heldur að setja tryggingu hjá lögreglustjóra en tryggja hjá einhverju tryggingarfjelagi.