28.03.1927
Efri deild: 38. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (3317)
101. mál, styrkur handa stúdentaefnum frá gagnfræðaskólanum á Akureyri
Jónas Jónsson:
Jeg get ekki sagt, að hæstv. atvrh. (MG) hafi leyst vel úr spurningum mínum. Hann vildi ekki gefa loforð um það, að till. hefði varanlegt gildi. (Atvrh. MG: Jeg tel ekki þörf á því). Það gæti þó sparað þinginu það ómak að ræða um þetta aftur að ári.
Þá virtist hann ekki átta sig á því, að það getur verið betra fyrir pilta að taka próf erlendis heldur en hjer hjá mönnum, er sýnast vera hlutdrægir fyrirfram í garð þessara nemenda. En eins og jeg sagði áðan, ber brjef rektors mentaskólans vott um mikinn kulda í garð nemenda í Akureyrarskóla.
Það hefir afarsjaldan komið fyrir, að Íslendingum hafi orðið hált á prófum á útlendum málum. Sjálfur hefir hæstv. ráðh. (MG) tekið að minsta kosti tvö próf erlendis, með sæmilegum árangri, og fjöldi Íslendinga hefir tekið próf í heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla, eftir tiltölulega stuttan tíma og án mikilla kynna af dönsku fólki, eða jafnvel af kennurum þeim, er prófa í þessari grein, og er þess ekki getið, að málið hafi orðið neinum að fótakefli.
Brjef rektors ber með sjer þann kulda í garð þessara ungu námsmanna, að ekki er ósennilegt, að einhverjir
þeirra vildu frekar leggja út í próf erlendis en eiga á hættu að falla hjer vegna óvildar.
Hæstv. ráðh. (MG) sagði það ekki vera vegna orða rektors, að svo fór sem komið er. Hvers vegna var þá verið að bera málið undir hann? Vitanlega kom honum það ekki við. Enda mun orka tvímælis, hversu heppilegt það hafi verið af hæstv. stjórn að blanda honum inn í það, sjerstaklega vegna þess samkepnisanda, er kemur fram í umsagnarskjali hans. En jeg geri nú samt ráð fyrir, að ekki sje örgrant um, að einhverjir hv. þm. hafi látið það hafa áhrif á sig, úr því að hæstv. landsstjórn hafði útvegað skjalið sem sönnunargagn.
Þá vil jeg leyfa mjer að benda hæstv. ráðh. (MG) á, hve óverjandi sú aðferð hans er, að leggja fram í þinginu dóm meiri hluta háskólaráðsins, án þess að upplýsa, að ráðið skiftist um málið. Af því að hæstv. ráðh. gat veitt þessa heimild og löggilt skólann nyrðra sem prófstofnun, eins og hann líka kannaðist við, er hann sagði, að stæðu þeir sig vel í vor, mætti vel vera, að það yrði gert að ári, þá vantaði, eins og hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) komst að orði, ekki nema ofurlitla góðvild og skilning á málinu.
Ef hæstv. ráðh. (MG) eða hv. flm. (JKr) hefðu skýrt frá því, að tveir frægustu prófessoramir í háskólaráðinu álitu prófrjett fyrir stúdenta fullkomlega löglegan eins og málinu er háttað, og voru þar í fullkomlega samþykkir lögfræðingunum á Akureyri, hefði það breytt viðhorfinu töluvert við umræður málsins á þingi.
Hv. flm. (JKr) sagði, að maður mætti ekki leyfa sjer að hafa skoðun þvert ofan í álit lögfræðinganna. En ef þá greinir á? Einn lögfræðingur í háskólaráðinu segir það stríða móti lögum, sem tveir lögfræðingar á Akureyri fara fram á. Það er enginn sá hlutur til í heiminum, sem lögfræðingum kemur saman um. Það, sem einn segir lög, segir annar vitleysu og lögleysu. Málfærslumenn fyrir rjetti halda fram gagnstæðum skoðunum og sverja og sárt við leggja, að þeirra málstaður sje sá rjetti. Án þess jeg vilji fara að fræða hv. 6. landsk. (JKr) út af því, að ekki tjái að deila við lögfræðingana, þá vil jeg þó láta hann vita, að menn með sæmilega heilbrigðri skynsemi taka ekki trúanlegt nema það, sem þeim trúanlegt þykir af lögskýringum svokallaðra lögfræðinga, því að alkunnugt er um marga þeirra, einkum hjer á landi, að þeir hafa merkilega gáfu til að álykta rangt.
Í ræðulok urðu tilburðir hæstv. ráðh. út af hv. 6. landsk. líkastir því, er endur á vorin reyna að verja ósjálfbjarga unga sína. Þó að hv. 6. landsk. (JKr) sje kannske hvítvoðungur, þá hefir hann þó hlotið alleinkennilega frægð fyrir ekki löngu, svo að mjer þótti hann sæta helsti mikilli niðurlæging af hálfu hæstv. ráðh.