28.03.1927
Efri deild: 38. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (3322)

101. mál, styrkur handa stúdentaefnum frá gagnfræðaskólanum á Akureyri

Einar Árnason:

Jeg gerði fyrirspurn til hv. flm. (JKr), og hann hefir svarað. Jeg skal taka það fram, að jeg er ánægður með svör hans viðvíkjandi því, hvað skilja mætti við orðið „ferðastyrk“ í till. En mjer skildist á hæstv. forsrh. (JÞ), að hann myndi fara sínu fram um það, hvað hann borgaði. Mjer skilst, að hjer sje ekki bygt á neinum föstum grundvelli, og þó að hv. flm. (JKr) hafi skýrt, hvað hann ætlaðist til að greitt sje, þá fer ræða hæstv. forsrh. (JÞ) í bág við það, þar sem hann virðist áskilja rjett í sínar hendur um upphæð styrksins. Þetta atriði þarf því frekari athugunar við, áður en till. er til lykta leidd.