07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (3347)
126. mál, eignar- og notkunarrétt hveraorku
Flm. (Jakob Möller):
Jeg geri ekki ráð fyrir, að það þurfi að vera ágreiningur um þetta efni milli mín og hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ). Jeg lít þó svo á, að vatnalögin taki fyrst og fremst til yfirborðsvatns, en hjer er um að ræða hveraorku, ekki beint vatnið, heldur gufuna, og til þess að hagnýta þessa orku þarf oft að bora langt niður í jörðina. Mjer skilst, að það geti verið vafamál, hvað rjettur landeiganda nær langt niður. (SvÓ: Að miðdepli jarðar). Um þetta skal jeg ekki deila, enda er nógur tími til þess, þegar frv. kemur fram um þetta efni. Jeg hygg, að það sje áreiðanlegt, að vatnalögin nái ekki yfir þetta.
Annars er þetta ekki eins þýðingarmikið atriði eins og sumir kunna að álíta. Aðalatriðið er, að afnotarjettinum, sem ríkið mundi öðlast, yrði ráðstafað til almenningsheilla. Það er það, sem meint er með till.