13.05.1927
Sameinað þing: 10. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (3368)
132. mál, milliríkjasamningar
Flm. (Jóhannes Jóhannesson):
Eins og tekið er fram í greinargerðinni fyrir þáltill. þeirri, er hjer liggur fyrir, hafa hin Norðurlandaríkin fjögur, Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland, gert samninga um það sín í milli innbyrðis, að leggja öll deilumál sín, sem eigi verða jöfnuð á annan hátt, undantekningarlaust undir alþjóðadómstólinn í Haag til úrslita.
Af hálfu Noregs bar á nokkurri tregðu á að gera þannig lagaðan samning við Danmörku, en svo fór, að í febrúarmánuði s. l. samþykti norska ríkisþingið með talsverðum atkvæðamun slíkan samning.
Af hálfu Svía hefir því verið hreyft, hvort vjer Íslendingar mundum eigi vilja gera slíka gerðardómssamninga við hin Norðurlandaríkin, og þess vegna höfum vjer flm. þessarar till., eftir ósk hæstv. forsrh. (JÞ), kynt oss málið að nokkru og komist að þeirri niðurstöðu, að alt mæli með því, en ekkert í móti því, að Ísland fylgi dæmi hinna annara Norðurlanda í þessu efni, og því leyft oss að bera till. fram í samráði við hæstv. forsrh. (JÞ).
Ætlast er til, að samningarnir taki undantekningarlaust til allra deilumála, sem íslenska stjórnin og stjórn hins Norðurlandaríkisins, sem í hlut á, geta ekki jafnað með sjer, en að áskilið verði í samningunum, að þeir sjeu gerðir að áskildu samþykki Alþingis, þannig, að það þurfi að koma til, áður en samningarnir geti öðlast gildi.
Í hinum Norðurlandasamningunum eru þau ákvæði, að hvor aðila megi segja þeim upp með tveggja ára uppsagnarfyrirvara á hverjum 20 árum, og er ætlast til, að eins verði um samninga þá, er íslenska stjórnin gerir.
Í 17. gr. sambandslaganna eru sjerstök ákvæði um gerðardóm í ágreiningsmálum milli vor og Dana, um skilning á ákvæðum sambandslaganna, sem bæði ríkin eru að sjálfsögðu bundin við, og verður samningur vor við Dani því að verða með dálítið öðru móti en samningarnir við hin Norðurlandaríkin.
Með þessum fáu orðum leyfi jeg mjer, fyrir hönd flm. till., að mælast til þess, að hv. þing vilji samþ. hana.