13.05.1927
Neðri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í D-deild Alþingistíðinda. (3380)

131. mál, uppmæling siglingaleiða og rannsókn hafnarbóta

Flm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg vildi aðeins þakka hæstv. atvrh. (MG) fyrir undirtektir hans í þessu máli og fyrir það, hversu hann hefir aflað sjer upplýsinga um það.

Það má vel vera, að best sje að taka þetta alt fyrir í einu, að minsta kosti úr því að fengnir verða til þessa menn frá Danmörku. En það var álit mitt, að ef hægt væri að taka varðskipin í þetta, þá mundu vera menn á þeim, sem kynnu til þessa og gætu tekið eina uppmælingu í senn – en það er 6–8 daga verk — og gætu þeir gert þetta, þegar tækifæri væri best til þess. En jeg skal fúslega játa það, að úr því fengnir verða menn frá Danmörku til þess að annast þessar mælingar, þá er það rjettasta leiðin að taka þetta alt fyrir í einu. Og þetta ber einnig að athuga í sambandi við vitaskipið. Annars hjelt jeg, að það mundi nú verða notað minna til flutninga að vitunum en hingað til, þar eð stjórnin telur það svo kostnaðarfrekt að halda skipinu úti. En út í þetta skal jeg ekki fara. En jeg vænti, að hæstv. atvrh. (MG) haldi málinu vakandi, svo að byrjað verði á framkvæmdum þegar næsta sumar.

Jeg gleymdi að taka það fram í fyrri ræðu minni, að vitanlega er það meining okkar flm., að till. heimili fjárgreiðslu úr ríkissjóði, ef hún verður samþ., enda þótt hún hafi ekki gengið í gegnum fleiri en eina umr.