18.05.1927
Efri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í D-deild Alþingistíðinda. (3418)
133. mál, lánsstofnun handa bátaútveg landsins
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Jeg vil fyrir hönd stjórnarinnar lýsa yfir því, að verði till. á þskj. 610, samþ., þá mun stjórnin hafa allan hug á því, að rannsaka þetta mál vandlega og athuga, hvort ekki er hægt að koma skipulagi á þessar lánveitingar, sem till. fjallar um.
Stjórnin er alveg sammála hv. frsm. (JBald) um það, hve mikilsverður bátaútvegurinn er fyrir okkar þjóð, og ekki síst af þeim ástæðum, sem hann nefndi, nefnilega þeim, hve víða arðurinn dreifist, og svo vegna þess, hve aðgengilegt það er fyrir menn, að geta stundað þennan atvinnuveg ásamt öðru, t. d. landbúnaði.
Í niðurlagi ræðu sinnar nefndi hv. þm. lánsfjelög, og er það rjett, að þau eru notuð víða annarsstaðar, þar sem svipuðu augnamiði á að ná, og verður það auðvitað með því fyrsta, sem kemur til athugunar, hvort ekki sje rjett að styðja samtök manna í þessu efni.
Ástæðurnar leyfa ekki löng ræðuhöld, og jeg skal því ekki fara langt út í ræðu hv. frsm. (JBald), að því leyti sem hún ekki snertir efni till. beint. Hv. frsm. sagði, að það væri óeðlilegt, að útflutningsgjaldið af sjávarafurðum rynni til ræktunarsjóðsins. Um þetta er nú tæplega að ræða nú orðið, því að frá byrjun ársins 1927 fær ræktunarsjóðurinn ekki annað af útflutningsgjaldinu en það, sem áætlað var 1925 að mundi samsvara því, sem til fjelli af útfluttum landbúnaðarafurðum. Hinn hlutinn af útflutningsgjaldsaukanum gengur nú beint til ríkissjóðs, sem endurgjald fyrir það, að ríkissjóður kostar landhelgisgæsluna.
Því, hvað langt sje komið með að greiða miljónina til ræktunarsjóðsins, get jeg ekki svarað nú. Jeg er ekki við því búinn, en það vantar enn mikið á, að hún sje að fullu greidd, og það tekur enn mörg ár, að greiða það, sem eftir er.
Jeg hefi svo ekki meira að segja um þetta, en vil endurtaka það, að ef till. verður afgr., mun stjórnin taka henni hið besta.