26.02.1927
Neðri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í D-deild Alþingistíðinda. (3425)
42. mál, milliþinganefndir fyrir tolla- og skattalöggjöf
Flm. (Halldór Stefánsson):
Mjer þykir heldur fyrir því að heyra, að hæstv. forsrh. (JÞ) skuli vera á móti því, að till. þessi nái samþykki í þinginu. En þegar jeg lít til ræðu hans að öðru leyti, finst mjer næstum hvert atriði, sem hann tók fram, mæla með því. Mjer er ekki ljóst, hvenær við megum búast við að fá verðfasta peninga, en mjer skilst, að biðin geti orðið nokkuð löng, ef bíða á eftir því. Hæstv. forsrh. getur ef til vill gefið einhverjar upplýsingar um þetta efni.
Það er rjett, að endurskoðun á tollalöggjöfinni fór fram 1921, en mjer virtist hæstv. ráðh. viðurkenna, að hún hefði ekki fyllilega náð tilgangi sínum þá, af því að við hefðum orðið of seinir til. Því meiri ástæða ætti þá að vera til þess að fresta henni ekki um of nú.
Aðalástæða hæstv. ráðh. var sú sannfæring hans, að þetta mundi mistakast. Jeg get ekki sjeð, að endilega þurfi svo að fara. Jeg hefi bent á leiðina, að hafa mætti hreyfanlega tolla á tvennan hátt, fyrst misjafnlega háa hundraðstölu, og svo einhverja ákveðna tolla, sem mættu og ættu að vera hreyfanlegir á milli atvinnugreina. En þetta þarf að ákveða með skýrri hugsun. Jeg ætlast ekki til, að tollar sjeu hreyfanlegir án lagaákvæða.
Jeg þarf varla að minnast á tímabilið, sem jeg tók til samanburðar; jeg þori ekki að segja nema jeg hafi nefnt 1925 móti 1876, en jeg hefi 1924 skrifað hjerna fyrir framan mig, svo að mjer hefir þá orðið mismæli. En jeg mun hafa nefnt 1925 í öðru sambandi.
Mjer kom ekki á óvart, þó að hæstv. ráðh. hefði annað sjónarmið í verndartollastefnunni en fram kom hjá mjer. Jeg skal játa, að jeg mun ekki eins ragur við verndartolla og hann. En mjer fanst hann ekki gera neina grein fyrir, hvaða áhrif við gætum haft á þetta heimsböl, verndartollana, með því að sitja hjá. Jeg tók fram, að jeg mundi ekki hafa nefnt þá á nafn, ef þeir hefðu ekki verið fyrir. En spurningin er sú, hvort við eigum að kyssa á vöndinn hjá öðru þjóðum eða haga okkur á móti eins og aðrir haga sjer við okkur. Mjer þykir það undarleg hugsun, að aðrar þjóðir muni endilega þurfa að styggjast og „skella í lás fyrir okkur, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, þó að við beitum sömu aðferðum og aðrir. Ef gert er ráð fyrir þessháttar siðgæði í heiminum, held jeg, að okkur geti staðið hætta af æði mörgu.
Þá sagði hæstv. ráðh. að það væri ekki rjett, sem jeg hefði sagt um aðstöðumun íslenskra og norskra kjötframleiðenda, þar sem jeg hefði ekki látið þess getið, að íslensk kjötframleiðsla nyti verndartolla. Jeg tók það einmitt fram, að atvinnugreinarnar nyti dálítils verndartolls, þar sem verðtollurinn væri, þótt ekki væri hann settur sem verndartollur. Annars fanst mjer þetta svo lítilsverð tollvernd fyrir kjötið okkar, að mjer datt ekki í hug, að á það yrði bent, enda hygg jeg, að það hafi enga þýðingu fyrir kjötframleiðendur. Það munu vera aðrar ástæður, sem ákveða kjötverðið innanlands.
Jeg get sagt það, að mjer er ekkert kappsmál að till. sje vísað til 2. umr., ef hún á ekki að fá að fara til Ed. Mjer finst hreinlegast, ef deildin vill ekki að till. komist áfram, að hún sje feld við þessa umr.