24.03.1927
Sameinað þing: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í D-deild Alþingistíðinda. (3441)
88. mál, stúdentspróf við Akureyrarskóla
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Í byrjun þessa þings barst stjórninni erindi frá nokkrum mönnum á Akureyri um það, að nemendum í 3. framhaldsbekk gagnfræðaskólans þar væri leyft að taka stúdentspróf fyrir norðan. Þetta erindi var sent kennurum mentaskólans til athugunar, og rektor hefir í brjefi dags. 21. febr. lagt á móti þessu af þeim ástæðum, að þar sem ekki hafi verið gefin nein reglugerð um, hvernig náminu skyldi hagað fyrir norðan og engin vorpróf haldin, og þar sem engar upplýsingar liggi fyrir um það, hvaða bækur þar hafi verið notaðar við kensluna eða hvernig náminu hafi verið hagað að öðru leyti, þá geti þessir framhaldsbekkir Akureyrarskólans engan veginn jafngilt lærdómsdeild mentaskólans.
En þar sem þetta mál snertir háskólann, þótti rjett að senda þetta erindi til umsagnar háskólaráðsins. Svar kom frá því 21. mars, eða fyrir 3 dögum, og til að tefja ekki tímann með því að skýra frá innihaldi þess, ætla jeg að lesa upp nokkum hluta þess, með leyfi hæstv. forseta. Það er svohljóðandi:
„Með brjefi hins háa ráðuneytis, dags. 14. þ. m., meðtók háskólaráðið til umsagnar:
1. Erindi nokkurra manna á Akureyri um stúdentspróf við gagnfræðaskólanr. þar.
2. Þingsályktunartillögu, sem komin er fram á Alþingi um sama mál, og
3. Umsögn rektors mentaskólans um málið.
Málefni þetta var lagt fyrir háskólaráðsfund 17. þ. m., og svarar háskólaráðið því á þessa leið:
Meðan ekki er komið á fót fullkominni lærdómsdeild við gagnfræðaskólann á Akureyri, verður skólinn ekki talinn jafngildur hinum almenna mentaskóla í Reykjavík. Stúdentspróf frá gagnfræðaskólanum getur, meðan svo er ástatt, eigi veitt rjett til innritunar við háskólann, samkv. 17. grein háskólalaganna. Að þessu athuguðu getur háskólaráðið ekki mælt með því, að þingsályktunartillaga sú, er hjer er um að ræða, verði samþykt“.
Af þessu er bert, að háskólaráðið álítur, að það sje ekki heimilt samkv. lögum háskólans að láta þessa menn taka próf á Akureyri, heldur verði þeir að taka próf við mentaskólann í Reykjavík, þar sem hann hafi einkarjett til að útskrifa stúdenta, eftir því sem nú stendur, er aftur gerir það að verkum, að þeir einir, sem þaðan hafa tekið próf, hafa rjett til þess að fá borgarabrjef við háskólann. En tækju nú þessir piltar próf fyrir norðan, þá yrði afleiðingin sú, að háskólaráðið myndi ekki vilja láta þá fá borgarabrjef hjer við háskólann, og gætu þeir því ekki tekið próf við háskólann á sínum tíma.
Jeg ætla að leyfa mjer að lesa 17. gr. háskólalaganna, sem háskólaráðið vitnar í:
„Hver sá, kona sem karl, er lokið hefir stúdentsprófi við hinn almenna mentaskóla eða annan lærðan skóla honum jafngildan, á rjett á því að verða skrásettur háskólaborgari“.
Þetta eru þau orð, sem háskólaráðið byggir sína skoðun á. Og það er rjett, sem háskólaráðið heldur fram, að Akureyrarskóli hefir aldrei verið löggiltur sem lærður skóli. Jeg lít því svo á, að það væri þýðingarlaust, þótt stjórnin fengi heimild til þess að láta þetta próf fara fram, því að háskólaráðið myndi aldrei veita þessum stúdentum að norðan viðtöku. Og 17. gr. háskólalaganna verður ekki skilin á annan veg en þann, sem háskólaráðið hefir skilið hana. Auk þess er það mjög óráðlegt að skora á stjórnina að framkvæma það, sem ekki er í samræmi við landslög.
Mjer skildist á hv. flm. (JKr) að tilgangur hans og flm. væri sá að ljetta undir með þessum fátæku piltum, hvað kostnaðinn snertir. Jeg get fyllilega tekið undir það með honum, að það væri æskilegt. Og jeg skal f. h. stjórnarinnar taka það fram, að hafi Alþingi ekkert við það að athuga, að þessir piltar væru styrktir til suðurferðar til að taka próf, þá mundi jeg fús til að láta af hendi einhvern styrk í því skyni. En þetta getur aðeins komið til greina gagnvart þeim, sem eru fátækir, og má láta fara fram rannsókn á því. Kennarar gagnfræðaskólans myndu geta framkvæmt hana, þar sem þeir munu vera kunnugir högum þessara pilta, og myndu upplýsingar þeirra sennilega verða teknar gildar.