24.03.1927
Sameinað þing: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í D-deild Alþingistíðinda. (3443)

88. mál, stúdentspróf við Akureyrarskóla

Bernharð Stefánsson:

Því hefir verið haldið fram af hæstv. ráðh. (MG) og hv. þm. Ak. (BL), að till. sú, sem hjer liggur fyrir, komi í bág við gildandi lög. Áttu þeir sjerstaklega við 17. gr. háskólalaganna. Virtist líka, sem hv. aðalflm. (JKr) treysti sjer ekki til þess að mæla gegn því og mundi sætta sig við aðra lausn á málinu en till. gerir ráð fyrir. En jeg verð að segja það, að þótt jeg sje ekki löglærður maður, en þeir báðir lögfræðingar, er þessu halda fram, þá get jeg ekki fallist á skoðun þeirra. Það er og kunnugt, að fyrir norðan á mál þetta fylgi mikilsvirtra lögfræðinga, meðal annars manns, sem er í hárri dómarastöðu, og jeg skil ekki annað en honum sje vel kunnugt ákvæði 17. gr. háskólalaganna. Það er að vísu tekið fram í 17. gr. umræddra laga, að þeir einir hafa rjett til inntöku í háskólann, sem tekið hafa stúdentspróf við mentaskólann eða annan skóla jafngildan. En þegar þess er gætt, að samskonar kensla fer fram í framhaldsskólanum á Akureyri, eins og hjer í lærdómsdeildinni, þá verð jeg að telja, að líta megi svo á sem þessir skólar sjeu hliðstæðir. Að minsta kosti mun námið í aðaldráttunum vera hliðstætt.

Hæstv. dómsmrh. (MG) sagði, að erindi þetta hefði verið sent í tvo staði til umsagnar. Í fyrsta lagi til rektors mentaskólans, og hafi hann lagt á móti því. Jeg veit nú ekki, hvaða ástæða hefir verið til þess að senda erindið þangað. En hitt verð jeg að segja, að jeg get ekki lagt mikið upp úr því, sem rektor segir um þetta mál. Ekki á hann að taka við mönnum þessum, ef þeir ljúka prófi á Akureyri. Það má auðvitað líta svo á, að hann hafi þekkingu í þessum efnum. En þess verður líka að gæta, að ef Akureyrarskóli fær rjett til þess að útskrifa stúdenta, þá er hann orðinn keppinautur mentaskólans, og býst jeg við, að rektor verði þá tæplega talinn óhlutdrægur í þessu máli.

Hitt er miklu meira virði, hvað háskólaráðið hefir um þetta að segja og því eðlilegt, að umsögn þess væri fengin, þar sem þeir, er stúdentsprófið taka, fá rjett til inngöngu í háskólann. Annars kom mjer nú svar háskólaráðsins ókunnuglega fyrir sjónir, því að í fyrra las jeg brjef frá því um sama efni, og var niðurstaðan þar alt önnur. En um þetta brjef, sem háskólaráðið hefir nú skrifað, var mjer ekki kunnugt fyr en hæstv. ráðh. (MG) las það upp. Hefi jeg því ekki gert ráðstafanir til þess, að hafa brjefið frá í fyrra við höndina. En jeg man það fyrir víst, að þá lagði háskólaráðið ekki á móti því, að stúdentspróf yrði haldið fyrir norðan.

Jeg hefi þegar tekið það fram, að framhaldsnámið á Akureyri væri í aðalatriðunum hliðstætt námi í lærdómsdeildinni hjer. Og jafnvel þó svo væri, að þar væri í einhverjum atriðum vikið frá þeim reglum, sem hjer eru hafðar, t. d., að bekkjarpróf hafi ekki verið haldin, eins og minst hefir verið á, þá sje jeg ekki, að það breyti miklu, ef stúdentsprófið fyrir norðan sýnir, að nemendurnir hafi eins mikla og góða þekkingu og sjeu eins hæfir og þeir, sem ná prófi hjer syðra. Það eru engin vandræði fyrir stjórnina og háskólann að sjá um að hafa svo ábyggilega menn fyrir prófdómendur, að ekki nái aðrir prófi en þeir, sem hafa til þess næga þekkingu og þroska. Og ætti þetta þá að vera hættulaust fyrir háskólann.

Það er talað um að bæta úr þörf piltanna með því að veita þeim styrk til þess að koma hingað suður. Jeg játa, að þetta er betra en ekki neitt. En jeg býst við, að þeir, sem koma hingað til þess að taka próf hjá algerlega ókunnugum kennurum, standi alls ekki jafn vel að vígi og þeir piltar, er verið hafa hjer í skólanum og notið kenslu þessara kennara. Þannig verður þá misrjetti, enda þótt piltunum frá Akureyri yrði veittur styrkur. Er því hætt við, að prófið verði þeim hjer örðugra heldur en ef þeir tækju það fyrir norðan. Jeg býst við, að allir skilji þetta, sem gengið hafa undir eitthvert próf.

Hv. þm. Ak. (BL) kallaði þetta vandræðamál. Jeg get tekið undir það með honum. Það eru vandræði fyrir menn, sem numið hafa á Akureyri, að þurfa að koma hingað til prófs. Það eru vandræði fyrir þá menn, sem barist hafa fyrir rjetti Akureyrarskóla, að þurfa að feta sig svona stig af stigi, vegna mótstöðu hv. þm. Ak. (BL) og annara. Jeg játa, að það hefði verið eðlilegri lausn á þessu máli, ef samþykt hefði verið frv. það, er jeg bar fram á þinginu í fyrra um stofnun mentaskóla á Norðurlandi, heldur en sú leið, er hjer er farin. En ef þetta er vandræðamál, þá er það þeirra sök, sem standa gegn því, að þessi eðlilega og sjálfsagða krafa nái fram að ganga.

Þá sagði hv. þm. Ak. (BL), að ekki hefði verið gert annað á þinginu 1924 en að leyfa, að ein stofa yrði notuð til framhaldskenslu. Það var nú ekki neitt tekið fram um það, að það ætti að vera ein stofa, heldur var, eftir því sem þál. till. hljóðaði, leyft að nota húsrúm og kenslukrafta til framhaldsnáms, eftir atvikum, og ótiltekið, að hve miklu leyti.

Það getur verið rjett, að stjórnin hefði getað veitt þetta leyfi án þess að málið þyrfti að koma fyrir þing. En jeg efast um, að hún hefði gert það, ef ekki hefði komið áskorun til hennar frá Nd. Jeg tel því, að till., sem kom fram á þinginu 1924, hafi haft fulla þýðingu.

Hv. þm. Ak. (BL) var að tala um formleysi í þessu efni. En eins og jeg gat um í upphafi máls míns, veit jeg ekki betur en að mjög góðir lögfræðingar hafi fallist á þessa leið og ekki sjeð neitt formleysi í þessu, heldur stutt eindregið að því, að till. þessi kæmi fram.

Jeg vænti þess, að hv. Alþingi taki sanngjarnlega í þetta mál og láti ekki blekkjast af dagskrártill. þeirri, sem fram er komin, heldur samþ. þáltill. eins og hún liggur fyrir.