24.03.1927
Sameinað þing: 5. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í D-deild Alþingistíðinda. (3462)

88. mál, stúdentspróf við Akureyrarskóla

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Eins og jeg hefi tekið fram áður, þá er mentaskólinn eini skóli landsins, sem rjett hefir til þess að útskrifa stúdenta. Hitt er satt, að komið geta aðrir skólar til greina, er háskólinn tæki jafngilda.

Hv. þm. Str. (TrÞ) sagði, að vandinn væri ekki annar en sá, að gefa út nýja reglugerð. Þetta getur verið rjett, að vissu leyti, að því er snertir framtíðina, en það getur ekki átt við um þetta mál, því að ekki er hægt að gefa út reglugerðir um það, sem snertir liðna tímann, t. d. að bækur skuli lesnar, sem alls ekki hafa verið lesnar.