05.04.1927
Efri deild: 45. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í D-deild Alþingistíðinda. (3475)

106. mál, skipun opinberra nefnda

Flm. (Ingibjörg H. Bjarnason):

Jeg get verið stuttorð um undirtektir hæstv. stjórnar, þar sem hæstv. forsrh. (JÞ) lýsti því yfir, að hann væri því ekki mótfallinn að minsta kosti, að óskir þær, sem felast í till., yrðu teknar til greina, þegar slíkar nefndir eru skipaðar, sem till. talar um. En hinsvegar þótti mjer hæstv. ráðh. undirstrika það fullmikið, að hann áliti, að taka þyrfti sjerstakt tillit til þess, að hingað til hefðu verið frekar skipaðir karlmenn í slíkar nefndir, og mundi því svo verða enn um nokkurt skeið, vegna áhuga þeirra og þekkingar á málunum fram yfir konur, og vegna þess, að þeir mundu þar af leiðandi leysa starf sitt betur af hendi. Við þessu er því að svara, að það er ekki hægt að fella dóm um þetta, fyr en reynslan hefir skorið úr málum. Það er yfirleitt ekki hægt að segja, hvað með manninum býr, fyr en jafnóðum og hann er reyndur. Þess vegna verð jeg að álíta þessa undirstrikun hæstv. forsrh. ekki sem heppilegasta, og engan veginn fullnægjandi. Hinsvegar tel jeg ummæli hæstv. ráðh., að stjórnin mundi taka tillit til þessarar till., ef hún yrði samþ., góð og gild, og þó ekki meira en jeg vænti.

Þá hef jeg ekki fleira að athuga við þau fáu orð, sem stjórnin ljet falla í þessu máli, en sný mjer að andmælanda till., hv. 1. þm. Eyf. (EÁ).

Það er ekki óvanalegt, þegar verið er að ræða um annaðhvort rjettindi eða hæfileika kvenna, að það kveði við þennan tón hjá honum. Það er vantraustið, sem er ýmislega búið.

Hv. andmælandi vildi undirstrika, að rjettur karla og kvenna væri hinn sami. Auðvitað. Þetta tók jeg fram í framsöguræðu minni fyrir till. Þetta eru engar nýjar upplýsingar hjá hv. þm. Jeg gat nú ekki fest á pappírnum öll þau verðmæti, sem komu úr þessari átt. En meðal annars fanst mjer hv. þm. reyna að halda hlífiskildi fyrir hæstv. stjórn, þessari stjórn, sem hann ekki styður, og svo öllum stjórnum, sem kunna að koma, á þann hátt, að hann þóttist vilja losa stjórnina við þann bagga, sem till. þessi væri að binda henni. Hann kvað til of mikils ætlast af stjórninni að verða við tilmælum till., sem sje að skipa færar konur í nefnd. Jeg skal taka það fram, þessum hv. þm. til geðs, að við höfum af ásettu ráði sett „færar konur“ — færar — af því að það hefir reyndar komið fram við skipun nefnda, að allir karlmenn eru ekki jafnfærir; og því er best að fara varlega, eins og konur hafa farið varlega í þessi 12 ár, þótt þær nú óski þess, að rjettindin með lögum frá 1915 sjeu eitthvað meira en orðin tóm.

Það er ekki nema útúrsnúningur að segja, að till. ætlist til, að stjórnin skuli á hverjum tíma skipa nefndir konum eingöngu. Hv. andmælandi sá svo langt, að í 5 manna nefnd verða tómar konur, þær eru búnar að bola karlmönnunum burt. Hann sjer langt fram í tímann. Hann mintist á milliþinganefnd, sem nú liggur fyrir að skipa í þinginu, sem á að taka til athugunar búnaðarlöggjöf landsins. Þar á þingið að skipa tvo menn, en ríkisstjórnin einn. Þá blasir það svo við fyrir hv. andmælanda (EÁ), að ríkisstjórnin hljóti að skipa konu í nefndina. Við erum nú vanar því, konurnar, að það sje ekki á augnablikinu fullnægt öllum rjettindum, sem við eigum samkvæmt lögum. Svo að hann þurfti ekki að gera sjer miklar áhyggjur um, að í þessa nefnd yrði skipuð kona, enda þótt ríkisstjórnin hefði sýnt enn þá meiri skilning á rjettmæti þeirrar kröfu, sem felst í þessari till.

Hv. þm. hefir ekkert sjerstakt út á það að setja, að kona sje í þessari nefnd. Það er gott og blessað; enda er það vitanlegt, að t. d. hafa sumar ekkjur stjórnað búum sínum svo vel, að jeg efast um, að bændur landsins geri betur.

Hv. þm. fanst till. ganga of skamt, og skil jeg ekki almennilega, hvað hann á við. Hann virtist halda, að svo framarlega sem stjórnin á hverjum tíma ekki skipaði konur í sambærilegar nefndir þeim, sem tilnefndar eru á þskj. 288, þá mundi það lögbrot. Þó taldi hann vítalaust að verða ekki við þeim óskum, sem í till. felast.

Jeg var því miður ekki á landsfundi kvenna á Akureyri á síðasta sumri. En jeg hefi fyrir satt frá sannorðum og merkum konum, að þar hafi mætt konur hvarvetna af landinu, ekki einungis úr kaupstöðum, heldur einnig úr sveitum, og það engu síður; og þær konur voru allar sammála um, að óskir þær, sem felast í tillögunni, væru ekki einungis sjálfsagðar, heldur alveg nauðsynlegar.

En það taldi hann ekki aðeins sjálfsagt, heldur og nauðsynlegt, að konur tækju sæti í þeirri nefnd, er kynni að verða skipuð til að undirbúa þjóðhátíðina 1930. Það taldi hv. þm. hættulaust eða jafnvel heppilegt, kannske fyrir þá sök, að það væri ódýrara, og konur ynnu jafnvel þar sem karlar. Jeg vil ekki gera hv. þm. getsakir, mjer skildist helst meiningin vera þessi.

Að hv. þm. (EÁ) hnaut um þetta orð „færar“ er ekki mín sök. Hv. þm. Eyf. (EÁ) er þá mjög gjarnt til að hnjóta, ef ekki þarf meira til. Jeg tók þannig til orða, aðeins til þess að sýna, að ekki væri um bylting að ræða, heldur bendingu um, að á hverjum tíma skyldi skygnast eftir þeim konum til þessara starfa, er til þess álitust færar. Hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) vildi sanna, að orðið væri óþarft, því að annars yrði og að taka fram, að karlmenn skyldu færir vera. En það er misskilningur, því að jafnan ætti á hverjum tíma að hafa það fyrir augum, að færir menn veldust í opinberar nefndir.

Samanburður hv. þm. (EÁ) á færum konum og vanfærum átti víst að vera orðaleikur. En jeg kippi mjer ekki upp við slíkt. En það mælir hver þeirri tungu, sem hann er gæddur.

Hv. þm. taldi ekki rjett að gefa almenningi fyrirskipun um að skipa konur í nefndir, því ekki mundi þess ávalt kostur að framfylgja þeirri fyrirskipan. Hjer er jeg á öðru máli. Jeg tel sem sje víst, að gera megi ráð fyrir, að völ sje á konum, sem næga þekkingu hafi til þess að taka sæti í þeim nefndum, sem nefndar eru í till., og öðrum nefndum hliðstæðum.

Nenni jeg svo ekki að rekja þetta mál lengur nje elta ólar við hv. 1. þm. Eyf. (EÁ), en jeg verð þó enn að láta hann vita það, að dagskrá hans er í fylsta máta órjettmæt og hefir ekki við nokkur rök eða sanngirni að styðjast.

Og jeg vil skjóta því til hv. deildar. um leið og jeg fer þess á leit, að hún samþ. till. á þskj. 288, að hún athugi vel, áður en hún lætur til leiðast að ganga að þessari rökstuddu dagskrá — ef rökstudda skyldi kalla — að hjer er ekki á ferðinni nein bylting, nje um það að ræða, að konur sjeu að trana sjer fram, heldur það, að gætt sje nú og jafnan síðan þess rjettar, er konum ber til jafns við karla.