25.04.1927
Sameinað þing: 7. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í D-deild Alþingistíðinda. (3504)
114. mál, Landsbanki Íslands setji á fót útibú í Vestmannaeyjum
Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):
Það hefir verið krafa frá aðalkaupstöðum landsins að koma á fót hjá sjer útibúum frá aðalpeningastofnunum landsmanna. Hefir Ísafjörður fengið tvö, Akureyri tvö og á Austurlandi eru nú sem stendur tvö útibú, sitt frá hvorum bankanum, Landsbankanum og Íslandsbanka. Þá er eftir, af aðalframleiðslustöðunum, Vestmannaeyjar. Þar er að vísu eitt útibú, frá Íslandsbanka, en Landsbankinn hefir ekki sjeð sjer fært enn sem komið er að verða við kröfum Vestmannaeyinga í þessu efni.
Þessi till., sem hjer liggur fyrir, er því flutt sem áskorun á hæstv. stjórn, að hún hlutist til um við Landsbankann, að komið verði á fót útibúi frá honum í Vestmannaeyjum.
Þegar athugaðir eru allir staðhættir, kemur í ljós, að engir staðir hjer á landi leggja meira til verslunarveltu landsins en Vestmannaeyjar.
Eftir hagskýrslunum 1920–1923 nemur innflutningur til Vestmannaeyja um l½ miljón kr. á ári, og árið 1924 er hann um 2½ milj. kr.
Á sama tíma er útflutningurinn frá Vestmannaeyjum eins og nú skal
Árið 1919
2½ milj. kr
— 1920
2¾ — —
— 1921
4¼ — —
— 1922
4 — —
— 1923
6½ — —
— 1924
5¾ — —
eða nánar tiltekið 5.800.000 kr. árið 1924.
Þetta sýnir, að hjer er um stórkostlega viðskiftaveltu og framleiðslu að ræða, og ekki nema von, þó að útibú Íslandsbanka þar í Eyjum eigi erfitt með að standa straum af þessari veltu. Eftir því sem reikningur útibúsins ber með sjer, hefir aðalbankinn lagt til 1 milj. kr., og er það starfsfje útibúsins, auk 1½ milj., sem er innstæðufje sparisjóðseigenda.
En eins og viðskiftaveltan er, er þetta starfsfje auðvitað of lítið. Þess vegna hefir nú í vetur komið fram krafa frá Eyjaskeggjum um það, að komið verði á fót í Eyjunum útibúi frá Landsbankanum. Og ástæðan til þessa er í fyrsta lagi sú, að menn vilja losna við þá skuldaverslun, sem verið hefir manna milli, og haldist hefir vegna þess, að ekki hefir verið hægt að fá nóga peninga, hvorki til þess að greiða með verkkaup manna eða annað, sem kaupa þurfti. Í öðru lagi vilja margir menn heldur hafa viðskifti sín í Landsbankanum eða útibúi hans. Sumir þessara manna hafa lán sín í Landsbankanum, en verða þó að hafa til milligöngu í viðskiftum útibú það, sem á staðnum er, en mundu hverfa frá því, ef Landsbankaútibúið kæmi, og gætu þá hagað viðskiftum sínum á líkan hátt og menn gera annarsstaðar, hjá viðskiftabanka sínum. Í þriðja lagi finst Eyjaskeggjum ekki heppilegt, að útibú Íslandsbanka sje eitt um hituna að styðja atvinnurekstur Vestmannaeyja; þess sje full þörf, að Landsbankinn hafi með útibúi sínu nokkurn hemil á, hvaða viðskiftakjörum menn eru beittir.
Það eru þess vegna margir, sem standa á bak við þá kröfu, að útibúi frá Landsbankanum verði komið á fót í Vestmannaeyjum. Þessi áskorun, sem síðast hefir borist, er undirskrifuð af á annað hundrað kjósendum. En þeim nöfnum var safnað í flaustri, og mundi eflaust bætast fjöldi við, væri leitað á ný undirskrifta.
Vænti jeg því, að hæstv. stjórn taki þessu máli vel og að till. verði samþ.