07.03.1927
Efri deild: 21. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í D-deild Alþingistíðinda. (3519)
57. mál, sandgræðslugirðingar í Gunnarsholti
Jónas Jónsson:
Það kom í ljós hjá hv. flm. (EJ), að hann hefir ekki myndað sjer mjög greinilega skoðun um málið. (EJ: Það liggur ekkert á því). Hv. flm. fer fram á, að hjer sje gerð rannsókn á kostnað ríkissjóðs. Það mætti kannske verja eins miklu í hana eins og fyrirhleðsluna í Þverá í fyrra. Það er auðsjeð, að hv. þm. botnar ekkert í þessu sjálfur, enda er framkoma hans í þessu hálfbrosleg. Þegar ríkissjóður hefir varið svo miklu fje til að verja þetta land fyrir sandfoki, finnur hlutaðeigandi þm. upp eitthvert ráð til þess, að ríkissjóður þurfi að byggja þar líka. Hv. þm. veit ekkert um, hve mikið hreppurinn vill leggja til í þetta; það er aðeins ákveðið, að hann ætlar að nota það, sem gert verður, veit ekkert hvort á að hafa þar sjerstakan bústjóra, eða hvort á að hafa þar nógar kýr, til þess að geta notað alt þetta gras. (EJ: Jeg hefi enga heimild til þess að skipa fyrir um það). Nei, en hv. þm. hlýtur að hafa gert sjer einhverja grein fyrir því, hvert vit sje að leggja út í þetta fyrirtæki. Þar sem um 2000 hesta slægjur er að ræða, ætti innan skams að mega hafa þar álíka margt af nautpeningi eins og Guðmundur ríki hafði á Möðruvöllum. — Með nautpeningseigninni kemur áburður, og grasframleiðslan hlýtur að vaxa mjög mikið, og ef ekkert væri hægt að gera við alt þetta gras, nema hafa þar kúabú svo stórt, að alt grasið yrði notað, þá er það ekki nema eðlilegt, að hv. flm. ofbjóði kostnaðurinn, þegar bent er á, að ríkissjóður verður að leggja alt til.
Jeg hefi bent á, að grundvöllur till. muni vera rangur hjá hv. flm.; jeg hefi það frá bónda að austan, sem hjer var á ferð, að einmitt þarna liggi í nágrenni ágætar sauðfjárjarðir, og því ekkert eðlilegra en að þetta land væri lánað til slægna, á meðan sandflæmin eru að gróa upp. En að hv. þm. (EJ) vill fara að hafa hjer þjóðnýtingu, bendir á það, að hann er farinn að hallast að þeirri stefnu. En hv. þm. hefir játað, að hann vissi ekki neitt um málið og ekkert um kostnaðinn, hvorki hvað hann væri mikill nje hvernig ætti að skifta honum. Hann hefir aðeins borið nokkuð á móti því, að börnin mundu sálast af sandfoki þar, en jeg held, að þó að þau ekki köfnuðu þar, þá væri vafasamt, hvort foreldrar óskuðu eftir því að hafa börnin þar á sumrin, þar sem er meira og minna fult af sandi. Hv. þm. taldi þessa stefnu einskonar hangikjötsstefnu, en máske hefir það verið mismæli hjá hv. þm., en sennilega hefir þetta verið það fræga pólitíska hangikjöt, sem mest var talað um í Rangárvallasýslu í fyrra, og álitið er, að selt hafi verið út í Vestmannaeyjar af einum nafntoguðum íhaldskaupmanni til ágóða fyrir kosningasjóð íhaldsmanna. Jeg býst við, að hv. þm.
sje svo kunnugur í herbúðum íhaldsmanna í Rangárvallasýslu, að hann viti vel um það eina fræga hangikjöt, sem þar hefir verið á boðstólum. En þegar hv. þm. fer að tala um það, að jeg sje með þjóðnýtingu og ætti því að vera með þessu máli, þá er jeg eins og aðrir menn með þjóðnýtingu á ýmsum sviðum, þar sem skynsamlegt er að koma henni við, en get verið á móti henni á öðrum, og vitanlega er jeg á móti þessari þjóðnýtingu og skoða hana sem helbera vitleysu. Jeg vil líka benda hv. þm. á, að hann og hans flokksbræður, og þar á meðal einn ráðherra, hafa barist á móti allri þjóðnýtingu og hrópað hana niður með hverskonar „agitationum“, og kosningasmalar þeirra hafa haldið á loft hinum fáránlegustu sögum um allan ríkisrekstur. En sjerstaklega vil jeg benda hv. þm. á það, að hann er svo illa að sjer, að fyrsta málið, sem hann leggur til á þinginu, er dýr þjóðnýting, og sennilega af því tæi, sem hann getur ekki fengið einn einasta mann til að líta við, og ekki einu sinni þann þingflokkinn, sem þó einmitt hefir þjóðnýtingu á stefnuskrá sinni.
Þá vil jeg benda hv. þm. á það, hvernig afstaða hans og hans flokksbræðra er í þessu máli. Þeir glamra manna mest og senda menn út til þess að rógbera samvinnumenn fyrir, að þeir svíki stefnu sína og sjeu með allsherjar ríkisrekstri. Hv. 2. þm. Rang. ætti að muna, að flokksbræður hans hafa drepið sjálfsögð gróðafyrirtæki landsins, eins og tóbakseinkasöluna, eingöngu af því að það sje þjóðnýting.