07.05.1927
Efri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í D-deild Alþingistíðinda. (3577)
192. mál, umboðsmaður sáttasemjara á Austurfjörðum
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Hv. flm. þessarar till. (JBald) sagði það, að hæstv. atvrh. (MG) hafi tekið þessari till. vel, þegar hann bar till. undir hann, og ekkert haft á móti henni. Hæstv. atvrh. er nú bundinn við umr. í Nd. og hafði beðið mig að svara um þetta mál. Og af því að mjer hafði skilist svo, að jeg ætti að gefa alveg gagnstætt svar þessu fyrir hans hönd, þá þótti mjer undarlegt að heyra þessi ummæli hv. flm., og fór þess vegna inn í Nd. til þess að fullvissa mig um það, hvað rjett væri í þessu efni. Jeg hefi nú fengið staðfestingu hæstv. atvrh. á því, að hann er þessari till. mótfallinn; og jeg get sagt það fyrir stjórnarinnar hönd, að svona till. má ekki koma til stjórnarinnar, eftir eðli málsins, frá öðrum en sáttasemjara sjálfum. Aðeins það, að till. kemur frá þeim, sem getur skoðast sem fulltrúi annars aðiljans, er nóg til þess að setja þann lit á slíka ráðstöfun, ef hún verður gerð, sem gæti orðið til þess, að ráðstöfunin alveg mishepnaðist.
Nú heyrði jeg ekki hv. flm. geta þess, hvort þetta hafi verið borið undir sáttasemjara sjálfan. En jafnvel þótt svo væri, þá álít jeg, að till. ætti beinlínis að koma frá honum til stjórnarinnar; og jeg efast ekki um, að stjórnin taki vel hverju því, sem sáttasemjari sjálfur finnur ástæðu til að stinga upp á til fyrirgreiðslu í sínu starfi.
Af þessum ástæðum, og án þess að fara sjerstaklega út í efni málsins, vil jeg fyrir mitt leyti gera þá till., að málinu verði vísað til stjórnarinnar.