07.05.1927
Efri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í D-deild Alþingistíðinda. (3582)

192. mál, umboðsmaður sáttasemjara á Austurfjörðum

Flm. (Jón Baldvinsson):

Í framsöguræðu minni um þessa till. skýrði jeg frá því, að jeg hefði borið till. undir hæstv. atvrh. (MG). Um viðtal okkar hafði jeg þessi orð, er nú skal greina (tekið orðrjett eftir hraðritaranum): „Nú hefi jeg átt tal við hæstv. atvrh. (MG) um þessa till. áður en jeg bar hana fram, og skildist mjer hann ekkert hafa við hana að athuga; hann vildi reyna að hlutast til við sáttasemjara, að hann framkvæmdi það, sem till. fer fram á“.

Nú hefir hæstv. forsrh. (JÞ) skýrt svo frá afstöðu hæstv. atvrh. (MG) að hann væri öndverður till. (Forsrh. JÞ: Ekki voru það mín orð). Er nú hæstv. ráðh. (JÞ) að draga saman seglin, þegar vitnin eru komin? Hæstv. forsrh., sem orðin bar milli, kvað mig hafa notað tækifærið til þess að skýra rangt frá undirtektum hæstv. atvrh. (MG), er hann var ekki viðstaddur. Nú hafði mjer ekki skilist á hæstv. atvrh., að hann væri till. mótfallinn, en verð hinsvegar að taka afstöðu stjórnarinnar eins og hún er nú gagnvart till. (Atvrh. MG: Jeg skal skýra þetta strax og jeg kemst að).

Mjer finst hæstv. forsrh. gera of mikið úr því, að ekki megi bera fram neitt í þessa átt, nema frumkvæðið komi frá sáttasemjara. Það verður ekki sagt, að þetta snerti starfssvið sáttasemjara beinlínis, en óbeinlínis snertir það hann, að því leyti sem á að setja honum umboðsmann. En það er tilhögun á starfi, en ekki starfið sjálft.

Hæstv. forsrh. spurði, hvort óskir hefðu borist frá Austfjörðum um að bera fram þessa till. Því er einmitt svo varið. Verkamannafjelög báru fram þá ósk á sambandsfundi verklýðsfjelaga í vetur, að sambandsstjórnin hlutaðist til um, að slík till. yrði borin fram á Alþingi. Jeg hygg því, að hún sje komin rjetta boðleið. Ekkert hefði verið við það að athuga, þótt atvinnurekendur hefðu beðið stjórnina að hlutast til um, að settur yrði umboðsmaður. Það, að setja umboðsmann, hefir fyrirfram engin áhrif á vinnudeilur, nema hvað það kynni að verða til þess að setja niður deilur. Ef hæstv. forsrh. er á móti því, þá verð jeg að segja, að jeg skil ekki þá afstöðu hans.

Jeg held jeg hafi þá talað um alt, sem hæstv. ráðh. drap á. En jeg vil endurtaka þessa spurningu: í hvaða skyni vilja hæstv. ráðherrar vísa þessu máli til stjórnarinnar? (Forsrh. JÞ: Jeg hefi þegar svarað því).