09.05.1927
Efri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í D-deild Alþingistíðinda. (3600)
128. mál, sparnaðarnefndir
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Jeg hygg, að ummæli hv. þm. A.-Húnv. sjeu miðuð við tillögu, sem stjórnin bar fram á þinginu fyrir 2 árum, viðvíkjandi tölu á skyldukenslustundum kennara. Um suma skólana hafði stjórnin leyfi til að breyta gildandi ákvæðum, en um suma ekki. Því varð að ákveða þetta með lögum. Það hefði ekki verið rjett af stjórninni að breyta tölu kenslustunda í þeim skólum, sem henni var það heimilt, fyr en fengið var samþykki þingsins til sömu breytingar í hliðstæðum skólum. Úr því að stjórnin hafði ekki á sínu valdi að framkvæma þetta svo að samræmi væri í, var óhjákvæmilegt að leita samþykkis þingsins. Stjórninni gat ekki dottið í hug, að þingið feldi slíkar tillögur, eftir þær áskoranir, sem næsta þing á undan hafði samþykt, en sú varð þó raunin á.