09.05.1927
Efri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í D-deild Alþingistíðinda. (3602)

128. mál, sparnaðarnefndir

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi áður sagt frá því, að þegar sást, hve mikil mótstaða var í þinginu gegn fjölgun skyldustunda í skólunum, hafi stjórnin lýst því yfir, að ef tillögur hennar á þessu sviði næðu ekki fram að ganga, þá treysti hún sjer ekki að halda áfram hliðstæðum ráðstöfunum gagnvart öðrum starfsmönnum. Þó að hv. þm. (GÓ) vísi til þess, að fyrv. forsrh. (JM) hafi sagt, að ekki þyrfti lagaheimild til þess að fjölga skyldustundum kennara, þá ætti hann sem þingmaður að vera svo kunnugur löggjöfinni að vita, að í barnaskólum er stundafjöldi lögákveðinn, svo að stjórnin hafði ekki heimild til að gera breytingar þar, og jeg hygg, að svo muni vera um fleiri skóla, þó að jeg muni það ekki í svipinn.