22.02.1927
Neðri deild: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í D-deild Alþingistíðinda. (3609)

30. mál, vaxtalækkun

Flm. (Magnús Torfason):

Jeg get lýst ánægju minni yfir því, hve hæstv. fjrh. (JÞ) hefir tekið vel í þetta mál. Hann staðfesti með eigin orðum þau ummæli mín, að hann hefði vald til að lækka vexti, með því, að hann kallaði bankana handbendi stjórnarinnar. Það er einmitt með tilliti til þessa, sem jeg hefi litið svo á, að hæstv. fjrh. gæti í raun og veru gert það, sem hann vildi. Hinsvegar vildi jeg ekki hafa farið svo hörðum orðum um ástand bankanna eins og fram kom hjá hæstv. fjrh. En eins og hann sagði, er svo margt utan um þetta, sem ekki er vert að draga mjög fram í umr. hjer

Hæstv. fjrh. byrjaði með því að þakka stjórninni, að vextir hefðu lækkað 1. október 1925. Jeg skal ekki vefengja, að hann hafi stutt þar að. En áður en jeg fór heim af þingi vorið 1925, vissi jeg ekki betur en að annar bankinn hefði í hyggju að lækka vextina, og einu vonbrigðin mín urðu þau, að vextirnir voru ekki lækkaðir fyr en 1. október í stað 1. júlí. En til þess var fullgild ástæða, sem sje sú, hvað krónan hækkaði ört. Af því hljóta bankar að bíða meira eða minna tjón, sem þeir verða að reyna að vinna upp með nokkuð háum vöxtum.

Þá benti hæstv. fjrh. á það, að ekki væri nóg að heimta vaxtalækkun, heldur yrði að skapa skilyrði fyrir því, að hægt yrði að framkvæma þá lækkun. Jeg verð að játa, að þetta er rjett. En þá verður jafnframt að taka það fram, að sumarið 1925 voru öll skilyrði til fyrir vaxtalækkun, en krónuhækkunin eyðilagði þau skilyrði. Það hefði verið mun snjallara þá að lækka meira vextina en að fara eins ört í krónuhækkunina og gert var. Þá hefði verið nær að fylgja því heilræði hæstv. fjrh., að miklast ekki um of, þó að verðhækkun yrði á afurðum landsins í 1 eða 2 ár. Vextirnir hefðu verið lækkaðir og atvinnuvegunum gert kleift á sínum tíma að þola krónuhækkunina.

Mjer er kunnugt um það, að sjálfseign bankanna er lítil sem stendur, og þar kemur munurinn nú og 1923. Þá var hún að nafninu til mun meiri en nú. Nú eru engir sjóðir til að hlaupa upp á og skrifa af. Mjer hefir vitanlega ekki dottið í hug, að fara eigi ógætilega í niðurfærslu vaxta. Jeg vil sannarlega, að mál þetta verði vel og vandlega athugað. Hefði jeg verið hjer í deildinni, þegar ákveðið var, hvernig ræða skyldi málið, þá hefði jeg stungið upp á tveim umræðum. Það er full ástæða til að fara með þetta mál eins og önnur fjárhagsmál, sem fyrir þinginu liggja. Þegar talað er um, að ekki megi fara ógætilega í niðurfærslu vaxta, af því að bankamir missi við það viðskiftafje, er þar um leið sú bót í máli, að þeir fá betri og vissari viðskiftamenn með lækkun vaxranna. Að Landsbankinn stendur nú fult eins vel eða betur að vígi en Íslandsbanki, er að þakka lægri vöxtum. Jeg hjelt satt að segja, að það væri enginn skaði skeður, þó að ýms fjárglæfrafyrirtæki eða óviss atvinnuvegur, eins og t. d. síldarútvegur, væri rekið fyrir annað fje en bankanna.

Hæstv. fjrh. hefir nú með þessu, sem hann hefir lýst yfir, beinlínis látið í ljós, að þegar um vaxtalækkun sje að ræða, standi á bönkunum. Það hefði verið betra að sjá þetta fyrir 1925.

Þá fórust hæstv. fjrh. þannig orð, að ætla mætti, að niðurfærslu gjalda og skatta væri svo langt komið, að ekki yrði komist lengra á þeirri leið. Jeg vil einmitt vona, að við getum lækkað skattana talsvert, því 1924 voru lagðir á nýir, þungir skattar, og það er langt frá því, að búið sje að fella þá niður.

Það, sem jeg átti sjerstaklega við, þegar jeg lýsti því yfir, að stjórnin treysti sjer ekki til að lækka skattana, voru fjárlögin. Þar er gert ráð fyrir svo miklum útgjöldum, að ef þau verða ekki lækkuð að miklum mun, get jeg ekki sjeð, að við getum lækkað skattana. En jeg hjelt, að það væri hugsun hæstv. fjrh. og annara góðra manna hjer, að við mættum ekki stofna til fjárlaga með miklum tekjuhalla.

Hæstv. fjrh. gat þess, að Englendingar hefðu meiri vaxtamun en við hjer. Jeg skal ekki rengja hans orð, en hinsvegar er ekki nema hálfsögð sagan. Jeg veit, að þjóðbankinn enski hefir afarlága vexti, en það eru ekki vextir í eiginlegum skilningi. Hans fje er geymslufje, sem stórríkir menn eiga og vilja fyrir hvern mun halda í. En jeg vissi ekki, að munurinn væri svona mikill á Englandi yfirleitt. Jeg hjelt, að við hefðum fengið smjörþefinn af því, þar sem vextirnir af enska láninu voru talsvert háir. En það má vera, að hæstv. stjórn hafi verið alveg sjerstaklega óheppin, þegar hún samdi um það lán; um það má henni vera kunnugra en mjer.

Þá sagði hæstv. fjrh., að jeg hefði málað fjárhagsástæður þjóðarinnar fulldökkum litum. Það kann vel að vera. Jeg get sagt hæstv. fjrh. það, að einn af þeim mönnum, sem þekkja allra best fjárhag þessa lands, sagði við mig meðal annars, að Árnesingar væru nú að verða „skárstir“, og jeg hjelt satt að segja, að lengra mundi nú ekki þurfa að vitna. Hitt er vitanlega satt, og því hefi jeg aldrei neitað, að það verðfall, sem er á vörum okkar utanlands, í þessari kreppu, sem nú er, — og jeg hefi verið svo sanngjarn að játa það á þingmálafundum austur í Árnessýslu, — er ekki að öllu leyti gengishækkun að kenna. Mjer dettur ekki í hug að segja það. En hitt er víst, að hún hefir stórkostlega hert á.

Það er eitt, sem jeg svo að lokum vildi taka fram og brýna fyrir mönnum, og ekki síst fyrir hæstv. fjrh. Jeg held, að það sje áreiðanlega og ábyggilega víst, að ekki sje rjett að líta of björtum augum á framtíðina, því að jeg held áreiðanlega, að við eigum eftir afarþung ár, og munum eiga mjög erfitt með að komast fram úr þeirri kreppu, sem við erum í núna. Jeg segi þetta af því, að það er eins og hæstv. fjrh. í skrifum sínum líti aðeins til ókomna tímans og miði alt við hann en það dugir ekki; við verðum fyrst og fremst að hugsa um ástandið eins og það er, því hvað gagnar okkur að grasið grói, þegar fyljan er fallin? Og jeg hygg, ef alt á að reka á reiðanum og ekki á að hugsa um það að bæta fjárhag þeirra, sem nú eiga erfiðast með að standa í skilum og reka sinn atvinnuveg, að við komumst þá ekki hjá því að láta krónuna falla. En þessi till., sem jeg kem með hjer, er einmitt meðfram gerð til þess að forðast það, ef hægt væri.