21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í D-deild Alþingistíðinda. (3633)
54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins
Flm. (Sveinn Ólafsson):
Því er alment haldið fram, að landbúnaðurinn sje sú þungamiðja í starfi þjóðfjelagsins, sem alt eigi að miðast við, að hann sje sú atvinnugrein, sem mestu varði að þróist og aukist, en þverri ekki. Þessi skoðun er ekki á því reist, að landbúnaðurinn sje svo ýkja arðvænlegur nú á tímum eða leggi svo mikið til sameiginlegra ríkisþarfa, heldur hinu, að hann miðlar þjóðinni, auk vinnulauna starfsmannanna, þeim verðmætum, sem ekki verða í álnum talin, ekki metin af neinni gengisnefnd eða vegin á mangarans vog, en eru samt hyrningarsteinar undir menningu hennar í fortíð og nútíð, og sennilega líka í framtíðinni.
Allir hugsandi menn kannast við það, að siðmennilegum og þá um leið andlegum og líkamlegum þroska þjóðarinnar er betur borgið í skjóli landbúnaðarins en annara atvinnugreina. Orsakirnar til þessa, að svo er, ætla jeg ekki að rekja. Þær eru margar, og þar kemur margt til greina. Aðeins eitt atvik til skýringar þessu skal jeg nefna, og er það í raun og veru undirstöðuatriðið, eða að minsta kosti eitt af undirstöðuatriðunum, sem sje það, að landbúnaðurinn framar öðrum atvinnugreinum skapar sjálfstæða og óháða atvinnurekendur, ekki aðeins búendurna sjálfa, heldur jafnvel oft og tíðum vinnufólk þeirra, sem að einhverju leyti á sameiginlegra hagsmuna að gæta við búendurna.
Þetta fólk, sem þannig starfar, er í hugsun og háttum talsvert frábrugðið þeim, sem vinna í eyrarvinnunni. Aldrei heyrist þar um verkföll eða vinnubann deilt. Þetta fólk stendur ekki í kaupdeilum eða gerir samúðarverkföll. Það skiftir beint við náttúruna, og hún geldur því kaupið eftir verðleikum. Það er ekki að leita fyrir sjer með lævíslegu prangi til þess að geta seilst sem dýpst í vasa náungans og lifað af sveita hans. Það þarf heldur ekki að leggja sig niður við þá auðvirðandi ástríðu að reikna út við hvert fótmál og handtak, hvernig það geti með minstri fyrirhöfn og framlögum fengið það mesta fáanlega hjá öðrum. En sú hugsun hefir fyr og síðar átt drýgstan þáttinn í því að gera hugsunarháttinn lágsigldan, þar sem fjöldinn verður að leita sjer atvinnu hjá öðrum. Einmitt þarna skiljast leiðir með þeim, sem móðurmoldina rækta, og hinum, sem leita á náðir stórútvegarins og hinna stórfeldari atvinnufyrirtækja og eiga verða alt undir þeim í kaupavinnu eða daglauna. Það er engin þörf á að draga líkur að því hjer, hvor leiðin muni hollari og líklegri til þess að ala upp föður- og móðurbetrunga í framtíðinni. Allir skilja það og vita, sem ekki eru blindaðir af fákænsku og ljettúð.
Viðurkenningin um skilning Alþingis á þessu kemur fram í þeim margvíslegu ráðstöfunum, sem það hefir gert til eflingar landbúnaðinum. Þær ráðstafanir hafa að vísu ekki allar borið eftiræsktan árangur, en þær eru samt ótvíræður vottur viðurkenningarinnar.
Einhverjum kann að koma til hugar að þessi formáli eigi ekki sem best við till. á þskj. 74, um nefndarskipun til að athuga hag og horfur bátaútvegsins. En jeg verð þó að halda hinu fram, að hjer sje talsvert náið samband á milli. Bátaútvegurinn hefir frá fyrstu tíð haldist í hendur við landbúnaðinn og verið sameinaður honum á ströndunum strjálbygðu og landkostarýru. Bátaútvegurinn hefir verið annar aðalþátturinn í sjálfsbjargarviðleitni þjóðarinnar. Það er að vísu rjett, að hann hefir fært svo út kvíarnar á síðari árum í hinum stærri kauptúnum og verstöðvum, að hann hefir yfirskygt landbúnað nærsveitanna og dregið að sjer vinnuaflið úr sveitunum. En jafnvel þótt svona sje, felur hann í sjer framar stórútveginum og iðjufyrirtækjum, sem á fjársöfnunum eru bygð, skilyrði til að skapa heilbrigða atvinnuhætti og lífskjör handa fólkinu, sem hann stundar. Bátaútvegurinn er víðast hvar aðeins bygður á framlögum sjálfra fiskimannanna, en lítil auðsöfnun stendur þar að baki. Það er því sameiginlegt með bátaútvegsmönnunum og sveitabændunum, að hvorirtveggja sækja vinnukaup sitt í nægtabúr náttúrunnar, en þurfa hvorki að þiggja náðarbrauð af öðrum, nje heldur miða handtökin við lágmarksframlögin. Það er einmitt þetta, sem gefur bátaútveginum sjerstakt gildi, jeg vil segja menningarlegt gildi, og setur hann að vissu leyti við hlið landbúnaðarins.
Þá má einnig á það benda, að þar, sem bátaútvegurinn hefir dregið fólkið saman í fjölbýli á ströndum landsins, að vísu frá ræktunarstarfi sveitanna og stöðugri atvinnu að hæpnari atvinnu og tvísýnni, þar hefir nú á síðari árum bólað á talsverðum tilþrifum í áttina til landræktar og nýs landnáms út frá kauptúnunum og í kringum þau. Og jeg býst við, að einmitt út frá slíkum stöðum hefjist með tímanum það nýja landnám og landrækt, sem hugur þjóðarinnar stefnir að.
Á síðustu árum, eða nánar tiltekið frá því skömmu eftir aldamótin, hafa flest hin minni þorp og verstöðvar vaxið upp. Enn þá er nokkur gelgjubragur á öllum atvinnuháttum á slíkum stöðum. Fjelagsleg samvinna er lítil og frumbýlingsháttur á atvinnurekstrinum auðsær. Og nú á síðustu árum hefir komið lamandi afturkippur í bátaútveginn, sem sumpart stafar af þeim verðbreytingum, sem urðu á gjaldeyrinum fyrir tveim árum, og sumpart af þeim ástæðum, sem eru verri viðureignar, sem sje verðfalli sjávarafurða. Á þessu er að vísu nokkur munur frá einum landshluta til annars. Eftir því sem mjer hefir skilist, eru Austur- og Norðurland einna verst farin í þessu efni, enda munu síðustu vertíðir frekar hafa brugðist þar en vestanlands og sunnan. En þó að svona sje, er þessi útvegur að mörgu leyti hart haldinn og þjakaður af skuldum hvarvetna um land.
Það er mjög eftirtektarvert, að þar sem svona er ástatt og atvinnan mistekst, þar kemur upp sú hugsun, að biðja um útlenda hjálp, biðja um leyfi til þess að mega kalla útlendinga til landsins og útlent fjármagn. Jeg veit, að hv. þdm. er minnisstætt, að hjer hafa legið fyrir óskir um að leyfa útlendum fiskiflota aðgöngu og landsvist, fólkinu til atvinnubóta. Ef jeg man rjett, hafa slíkar beiðnir komið frá þrem kaupstöðum. Slíkt öfugstreymi — og hefndargjöf, ef veitt yrði, — mundi umturna enn frekar en orðið er heilbrigðum atvinnuháttum þjóðarinnar og fjölga öreigalýð. Liggur miklu nær, eftir föngum, að reyna að styðja hinn innlenda, sjálfstæða bátaútveg en að selja staðfestuna þannig. Fyrir bátaútveginn hefir aðeins fátt verið gert frá opinberri hlið. Fyrir rúmum 20 árum var stofnaður Fiskiveiðasjóður Íslands, og það er hjer um bil það eina, sem gert hefir verið í þessa átt. Þessi sjóður er ekki stór. Hann mun nú vera um 550 þús. kr., og árlegar tekjur hans nema nálega 32 þús. kr. Ætla mætti, að þetta fje væri látið ganga til bátaútvegarins. En svo er ekki, nema að litlu leyti. Af höfuðstólnum mun vera í útlánum hjá bátaútveginum 180 þúsund krónur gegn 5% rentu. Alt hitt hefir farið til hafnarmannvirkja; þar á meðal 275 þúsundir til Reykjavíkurhafnar, en 35 þúsundir til ýmsra annara hafna og 60 þúsundir nú fyrirheitnar Akureyrarhöfn.
Þannig hefir þessi eini fjárhagslegi stuðningur, sem bátaútveginum var fyrirhugaður, ekki orðið honum að verulegu liði. Hann hefir ekki fengið að njóta hans.
Það er rjett að taka það hjer fram, að í reglugerð fiskiveiðasjóðs felst einskonar heimild til að veita lán til hafnarbóta, en af henni er reyndar augljóst, að slíkar hafnarbætur eru hugsaðar frá öndverðu vegna bátanna, en ekki vegna stærri hafnarvirkja, eins og í seinni tíð hefir orðið ofan á. Hinsvegar má geta þess, að nýlega hefir verið lagður talsvert erfiður þröskuldur í veginn fyrir bátaútveginn. Á jeg þar við slysatryggingarlögin frá næstsíðasta þingi, sem einhliða lögðu á bátaútveginn, eða eigendur hans, iðgjaldagreiðslu alla vegna sjómanna, þá sömu iðgjaldagreiðslu, sem áður skiftist milli útgerðarmanna, ríkissjóðs og þeirra slysatrygðu. Jeg verð nú að halda því fram, að það hafi verið ófyrirsynju gert að leggja á þann útveg slíka byrði, og allsendis óþarft.
Jeg skal líka geta þess, að fyrir skömmu, — jeg hygg, að það hafi verið á síðasta þingi — lágu skýrslur fyrir úr ýmsum veiðistöðum á landinu um það, hver kjör útvegurinn byggi við á hverjum stað, og það virtist svo eftir þeim skýrslum, sem kjör hans, uppsátursgjald eða vervist, hafi verið allerfið og breytileg.
Þó að jeg hafi orðið til þess, ásamt öðrum hv. þdm. (ÁÁ), að bera fram þessa till., þá dettur mér ekki í hug að ætla, að jeg hafi nein sjerstök skilyrði til þess að benda á þær leiðir, sem hjer eigi eða þurfi helst að fara, enda verð jeg að geta þess, að jeg er að meira leyti sveitamaður en sjómaður. En þótt jeg ekki sjái mjer fært að koma með ákveðin ráð til umbóta á hag bátaútvegsins sem stendur, þá er mjer vel ljóst og skiljanlegt það, sem helst og einkum kreppir að honum, sjerstaklega þó í þeim landshluta, þar sem jeg er kunnugastur. Það er auðvitað, að víða á skorturinn á fjelagslegri samvinnu mikinn þátt í því, hve erfiðlega horfir fyrir þessum útvegi, og það er auðvitað líka, að skortur á hóflega dýru rekstrarfje er einhver allra erfiðasti hjallinn fyrir hann, því eins og jeg tók fram áður, þá hefir hann ekki nema að litlu leyti fengið að njóta þess rekstrarfjár eða lánsfjár, sem honum einu sinni var ætlað að njóta með vægum kjörum. Eðlilega er lítið veðhæfi bátanna, og skortur á veðhæfum eignum útvegsmanna oft þess valdandi, að vaxtakjörin verða erfið.
Við flm. höfum komist að þeirri niðurstöðu, að þó að með tillögum um breytingar á lögum um fiskiveiðasjóðinn, eða með tillögum um minni háttar breytingar á slysatryggingarlögunum, eða yfirleitt með tillögum um smávægilega hluti, sem snerta útveginn, megi veita honum stuðning, þá þarf miklu víðtækari ráðstafanir og marghliða aðstoð honum til bjargar, og þess vegna höfðum við þá líka talið sjálfsagt að skipa milliþinganefnd til að undirbúa allar þær ráðstafanir, sem fyrir hann mætti gera, og að sjálfsögðu verður að hugsa sjer, að til þess starfa verði valdir sjerstaklega hæfir menn. Verkefni þeirra hlýtur að verða töluvert margþætt, því að á margt er að líta, og tæplega við því að búast, að verkið verði leyst vel af hendi nema því aðeins, að í nefndina verði valdir menn frá ýmsum landshlutum, sem hafi glögga og staðlega þekkingu á hag þessa útvegs hvarvetna á landinu.
Nú eru komnar fram brtt. á þskj. 122 við till. okkar hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), sem lúta að því að færa aðaltill. út á víðara svið og láta hana ná yfir allan sjávarútveginn. Jeg fyrir mitt leyti verð að segja það, að jeg sje mjer ekki fært að hallast að þessum till., einkanlega vegna þess, að jeg álít, að verkefnið verði þá alt of umfangsmikið og tæpast viðráðanlegt. Auk þess finst mjer hjer vera að ræða um tvær eðlisólíkar tegundir atvinnu, þar sem eru bátaútvegurinn og stórútgerðin, og þótt svo sje, að sameiginleg úrlausnarefni fyrir hvortveggja greinar útvegs geti komið fyrir, þá ætti það ekki að spilla neinu eða rýra gildi nefndarstarfsins, þótt það um leið að einhverju leyti gæti orðið stórútveginum að notum. Og þeirra hluta vegna þarf ekki að teygja ákvæði till. út yfir stórútgerðina. Það er t. d. auðvitað, að markaðsleit og söluráðstafanir afurða, nýting fiskiúrgangs og trosfiskjar, verður altaf sameiginlegt, eins og líka reyndar ýmislegt annað. En svipaðan skyldleika má í raun og veru nefna milli allra atvinnugreina landsmanna; í raun og veru er það svo, að hver atvinnugreinin styður aðra, og eiga þær því allar eitthvað sameiginlegt.
Jeg hafði varla búist við því, að jeg mundi mæla fyrir þessari till. okkar hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ). Jeg hafði meira að segja, vegna sjúkleika, gert ráðstafanir til þess, að meðflm. minn (ÁÁ) gerði það, en hv. þm. (ÁÁ) hefir ekki komið hjer í dag (Einhver þm.: Þm. V.-Ísf. er veikur í dag.) — og þess vegna hefi jeg orðið að taka að mjer þessa framsögu, þótt ekki væri jeg undir hana búinn.
Nú mun þykja sjálfsagt, að mál eins og þetta verði athugað í nefnd, og jeg tel það líka allsendis óumflýjanlegt; vildi jeg þess vegna mælast til, að þessari umr. lokinni, að því yrði vísað til nefndar, og þótt jeg fremur hefði viljað kjósa til þess aðra nefnd en sjútvn., sem jeg á sjálfur sæti í, þá sje jeg þó ekki fært að gera það að till. minni, að því verði vísað til annarar nefndar.
Það má vel vera, að ýmsum sýnist, að óþarflega margir menn sjeu ákveðnir til starfans í milliþinganefnd, og skal jeg ekki um það deila. En fyrir okkur flm. vakti það, að af því að staðhættir eru svo breytilegir frá einum landshluta til annars, þá bæri nauðsyn til að taka menn frá öllum fjarlægari landshlutum í nefndina. En ekkert aðalatriði er það þó fyrir okkur, heldur hitt, að í nefndina, ef hv. Alþingi felst á till., verði skipaðir vel hæfir menn, sem mætti vænta að byggju eitthvað í haginn fyrir komandi tíma í þessu efni.