23.04.1927
Neðri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í D-deild Alþingistíðinda. (3639)
54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins
Hjeðinn Valdimarsson:
Brtt. mín á þskj. 122 er á þá leið, að þessi rannsókn verði látin ná til sjávarútvegsins yfirleitt, og er það í samræmi við áskorun Fiskifjelagsins til Alþingis. Mjer finst það leiða af starfi því, sem nefndinni er ætlað, að ekki sje hægt að gera greinarmun á bátaútgerð og stórútgerð í rannsókn hennar. Það er talað um að rannsaka sölumöguleika, breyttar og bættar veiðiaðferðir og ýmislegt fleira, sem er sameiginlegt fyrir bátaútveg og stórskipaútgerð, svo að varla sýnist mögulegt að takmarka rannsóknina við bátaútgerð eingöngu. Það kom nú raunar fram í nefndinni, að togaraeigendur hjer í Reykjavík mundu ekki óska eftir slíkri rannsókn sem þessari á togaraútgerðinni. En það virðist ekki næg ástæða. Ekki hefir útgerðin gengið það vel, að ekki sje æskilegt, að hún gangi betur, og það virðist full ástæða til að rannsaka, hvað veldur því, að hún ber sig ekki nema í allra bestu árum. Það varðar ekki aðeins togaraeigendur, hvernig sú útgerð gengur, heldur alt fólk, sem við hana vinnur á sjó og landi, og alla landsmenn. Það á að vera þeirra hagur, að útgerðinni sje sem haganlegast fyrir komið, notuð bestu tæki og aðferðir til þess að draga úr rekstrarkostnaði. Alt mælir með því, að brtt. mín verði samþykt. En eins og hv. frsm. (BSt) gat um, mun jeg fylgja till. að öðru leyti.