23.04.1927
Neðri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í D-deild Alþingistíðinda. (3644)
54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Af því að hv. 4. þm. Reykv. (HjV) hefir nú gert grein fyrir brtt. sínum á þskj. 122, þá þykir mjer rjett, fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar, að geta þess, að meiri hl. getur ekki fallist á brtt. af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi hefir ekki, eins og hv. þm. (HjV) hefir minst á, orðið þess vart, að stórútgerðarmenn hafi óskað eftir því, að milliþinganefndin gerði till. um atvinnurekstur þeirra, og er því þess minni ástæða til að leggja áherslu á það atriði. Þess ætti heldur ekki að vera mjög mikil þörf, því eins og menn vita, hafa þeir menn, sem togaraútgerð stunda, með sjer fjelagsskap, sem ætti að hafa besta aðstöðu til þess að rannsaka leiðir til umbóta á þeim atvinnurekstri. En smábátaútvegsmenn eiga verri aðstöðu til sameiginlegra aðgerða, vegna þess að þeir eru dreifðir um land alt. Er því full ástæða til fyrir Alþingi að gera sjerstakar ráðstafanir til, að athugaðar verði leiðir til umbóta í því efni. Í öðru lagi mundi starf milliþinganefndarinnar, ef starf hennar ætti að ná til alls útvegarins, verða yfirgripsmeira og dýrara en ella, og er það önnur ástæða meiri hl. til að leggja á móti brtt. hv. 4. þm. Reykv. (HjV).
Hv. 3. þm. Reykv. (JÓl), sem sjerstaklega hefir lagst á móti þáltill., þarf jeg ekki að svara, þar eð hv. flm. (SvÓ og ÁÁ) hafa þegar gert það. Hann hefir nú talað aftur í þessu máli, en þær ræður, sem hann hefir haldið í dag, eru ekki annað en endurtekning á því, sem hann sagði við fyrri umr. Færi jeg að svara honum, mundi það aðeins leiða til þess, að það kæmi 4. eða 5. útgáfa af ræðu hans þá.
Hv. þm. (JÓl) hjelt því fram, að Fiskifjelagið ætti að inna starf það af hendi, sem milliþinganefndinni er ætlað að gera, en í nál. er það tekið fram, að ætlast sje til, að milliþinganefndin starfi í samráði við Fiskifjelagið. Það hefir haft þetta mál til meðferðar og skipað í það nefnd, en sú nefnd hefir ekkert fje til umráða og getur því ekki starfað að málinu sem skyldi. Það yrði því betur trygt, að vel væri að því unnið, ef Alþingi skipaði milliþinganefnd í málið. Mætti þá búast við því, að í þá nefnd yrðu skipaðir menn úr nefnd Fiskifjelagsins. En samþ. þessarar till. væri samt nauðsynleg, til þess að gefa þessum mönnum tækifæri til að starfa.
Út af 5. lið þáltill. hjelt hv. 3. þm. Reykv. því fram, að þegar væri búið að gera ráðstafanir í þá átt með fjárveitingu í fjárlagafrv. til markaðsleitar. En þetta er ekki rjett, því enda þótt veitt hafi verið fje til markaðsleitar, þá er það í raun og veru alt annað mál en farið er fram á í 5. lið till.
Hv. 3. þm. Reykv. hefir hvað eftir annað í vetur talað um þekkingarleysi sjútvn. á þeim málum, er undir hana falla, og sagt, að hún hafi flutt margar ómögulegar till. Jeg skal fúslega játa það, að einn af nefndarmönnum sjútvn. hafi minni þekkingu en hv. þm. (JÓl) á útvegsmálum, og þessi maður er jeg. En hvað hv. samnefndarmenn mína snertir, þá er það ekki sannað mál, að þeir beri ekki eins gott skyn á þessi mál og hv. þm. (JÓl). Þar á t. d. sæti einn af stærstu útgerðarmönnum þessa lands, og hinir nefndarmennirnir allir hafa fengist við þau mál, er að útgerð lúta. Þetta er ekki annað en sleggjudómur hv. þm. (JÓl), sem engan rjett hefir á sjer.
Hv. þm. (JÓl) hjelt því fram, að allar milliþinganefndir væru gagnslausar. En reynslan sýnir hið gagnstæða. Skal jeg þar til nefna nýjasta dæmið, um „Brúarfoss“. Jeg efast um, að það skip væri komið hingað enn, ef ekki hefði starfað að því milliþinganefnd. Og frá fyrri tímum eru til miklir lagabálkar, sem enn þá eru í gildi og undirbúnir hafa verið í milliþinganefndum.
— Sje jeg svo ekki ástæðu til þess að orðlengja um þetta, en óska þess, að atkvgr. fari fram.