01.03.1927
Efri deild: 17. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í D-deild Alþingistíðinda. (3684)
51. mál, ungmennaskóli í Reykjavík
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg gat því miður ekki hlustað á aðalræðuna hjá hv. flm. (JJ), og heyrði þess vegna ekki, hvort fram kom till. um að vísa till. til nefndar. (JJ: Jú, til mentmn.). Jæja, þá sje jeg ekki ástæðu til að fara nákvæmlega út í till. við þessa umr., og mun jeg því geyma mjer það þar til síðar. En jeg vil geta þess strax, að jeg hefi ýmislegt við þessa till. að athuga, svo að hv. þm. (JJ) má ekki skilja ummæli mín svo að jeg muni síðar fylgja honum að málum, þó að jeg mæli ekki á móti henni nú. (JJ: Jeg veit, að mentamálaráðherrann hlýtur að verða með þessu). Það kemur síðar á daginn.