31.03.1927
Efri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í D-deild Alþingistíðinda. (3725)

91. mál, störf fiskifulltrúans á Spáni

Jón Baldvinsson:

Mjer voru það ekki mikil vonbrigði, þó að fram kæmi hjer í hv. deild einn maður úr hópi útvegsmanna og lýsti yfir því, að honum virtist lítið gagn að fiskifulltrúanum á Spáni, og kæmi fram með fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar um starf hans.

Jeg átti í nokkrum deilum við hæstv. atvrh. (MG), þegar lögin um fiskifulltrúann á Spáni voru á ferðinni hjer í þinginu. Jeg gat þess þá, að jeg byggist við, að það væri fult eins mikið tilgangurinn með frv., sem þá lá fyrir, að tryggja ákveðnum manni fast starf í nokkur ár, eins og að verða fiskverslun landsins að gagni. Jeg hefi hvergi heyrt talað um það gagn, sem að honum væri, og nú er svo komið, að einn útvegsmaður hefir komið með fyrirspurn til hæstv. stjórnar um starf hans. Að gagnið af störfum hans sje ekki mikið, má ekki hvað síst sjá af skýrslum frá honum sjálfum, sem lesa má svo að segja í öllum blöðum landsins. Jeg vildi aðeins benda á það, að sú skoðun, sem jeg hafði á lögunum, er þau voru sett, hefir rjett reynst, að kostnaðurinn við þetta starf yrði meiri en hæstv. stjórn gerði ráð fyrir, því það hefir nú komið á daginn, að kostnaðurinn hefir orðið alt að 25% hærri. Og landið borgar þetta alt, þó að það sje ekki greitt alt beint úr ríkissjóði því fyrst og fremst ber ríkissjóður 1/3, Landsbankinn 1/3 og Íslandsbanki 1/3 hluta kostnaðarins, en þetta er alt saman borið uppi með hærri útlánsvöxtum lánsstofnananna og þar af leiðandi hærra vöruverði o. s. frv. Það eru einnig engar sannanir fyrir því, að kostnaðurinn hlaupi ekki fram úr því, sein nú er. Það er meira að segja upplýst, að hann gerði það 1925. Jeg hygg, að hentugra hefði verið að fara þá leið, sem bent var á, þegar mál þetta var á ferðinni forðum, og margir vildu þá að farin væri, sem sje að hafa í staðinn fyrir þennan hátíðlega fulltrúa á Spáni fleiri umboðsmenn, sem hefðu náin kynni af þessari framleiðslugrein — t. d. af saltfiskstilbúningi — sem færu um ýms lönd í því skyni að reyna að opna nýja markaði fyrir vöruna. Það hefði verið hægt að kosta 3 slíka sendimenn á ári fyrir þau árslaun, sem fiskifulltrúinn á Spáni nú hefir.